Brotthvarf eða námshlé? Aðstæður brotthvarfsnema,ástæður fyrir brotthvarfi og áform um frekara nám
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/serritnetla.2025.4Lykilorð:
upper secondary school, dropout, future goals for studies and workÚtdráttur
Framhaldsmenntun ungmenna að loknum grunnskóla er talin mikilvæg til að stuðla að jöfnuði og velsæld þjóðfélaga. Hér á landi innritast um 95% nemenda í framhaldsskóla strax að loknum grunnskóla. Ýmsir mælikvarðar eru til á brotthvarf á framhaldsskólastigi og eru þeir mælikvarðar sem eru sambærilegir á Norðurlöndum allir með hæsta móti á Íslandi. Umtalsverður hópur ungmenna sem hverfur frá námi hér á landi hefur þó ágæta fótfestu í samfélaginu og er hlutfall þeirra sem ekki eru í námi, vinnu eða starfsþjálfun (vanvirk) með því lægsta í Evrópu. Í rannsókninni var leitað svara við (1) hvað einkenni stöðu og framtíðaráform 18–24 ára ungmenna sem hvorki stunda né hafa lokið námi á framhaldsskólastigi (brotthvarfshópur) í samanburði við þau sem stunda framhaldsskólanám eða hafa lokið því (skólahópur), (2) hvaða ástæður ungmenni utan skóla gefa fyrir brotthvarfi og (3) hvort fram komi munur á forspárþáttunum og ástæðum brotthvarfs innan brotthvarfshópsins eftir því hvort þau hafi áform um nám í náinni framtíð eða ekki. Notuð voru gögn Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Spurningalisti var lagður fyrir slembiúrtak ungs fólks á aldrinum 18–24 ára í brotthvarfshópi og samanburðarhópi nemenda sem skráðir voru í framhaldsskólanám eða höfðu lokið slíku námi. Heildarúrtaksstærð var 1.000 fyrir hvorn hóp og bárust 276 svör úr brotthvarfshópi og 602 úr samanburðarhópi. Niðurstöður sýndu að meirihluti ungs fólks í brotthvarfi hefur fyrirætlanir um frekara nám innan tveggja ára. Þá sýndu niðurstöður skýran mun milli brotthvarfs- og samanburðarhóps á þeim forspárþáttum brotthvarfs sem skoðaðir voru en ekki kom fram áberandi munur innan brotthvarfshóps eftir fyrirætlunum um frekara nám. Ástæður fyrir brotthvarfi voru helst námsleiði, vanmáttur og tilgangsleysi í námi. Niðurstöður falla illa að þeirri skýringu að mikið brotthvarf en lítil vanvirkni á Íslandi skýrist af því að stór hópur ungmenna sem standa vel kjósi að taka sér stutt námshlé.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2026 Hans Haraldsson, Ragný Þóra Guðjohnsen, Kolbrún Þ. Pálsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).