Nýjasta tölublað
Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun: Sérrit 2025 – Íslenska æskulýðsrannsóknin I er gefið út á vegum Netlu – Veftímarits um uppeldi og menntun og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Greinarnar eru unnar upp úr Íslensku æskulýðsrannsókninni (ÍÆ) en faglegur stjórnandi hennar er Ragný Þóra Guðjohnsen.
Útgáfudagur: 31. desember 2025
Ritstjórar eru Kristján Ketill Stefánsson og Valgerður S. Bjarnadóttir. Anna Bjarnadóttir annaðist verkefnisstjórn útgáfunnar fyrir hönd Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands.
Í sérritinu eru 4 ritrýndar greinar ásamt inngangi. Auk almenns prófarkalesturs eru ritrýndar greinar lesnar af ritstjórn og rýndar af tveimur sérfræðingum á sviði greinar. Nafnleyndar er gætt við ritrýnina.
