Senda inn efni
Minnislisti höfunda
Þú verður að staðfesta að þú uppfyllir atriðin á minnislistanum áður en þú heldur áfram.
- Greinum skal skila inn í tölvupósti til ritstjóra Amalía Björnsdóttir, prófessor (amaliabj@hi.is), Jón Ásgeir Kalmansson, aðjunkt (jonkalma@hi.is)
- Ritrýndar greinar í Netlu ættu að vera á bilinu 6 til 10 þúsund orð, að heimildaskrá og íslensku ágripi meðtöldum, en án ágripi á ensku og upplýsinga um höfunda
- Gerðar eru þær kröfur til höfunda að þeir taki mið af viðteknum venjum um fræðilega framsetningu, vísindaleg vinnubrögð og vandaðan frágang. Miðað er við reglur APA um framsetningu tilvitnana, tilvísana og heimildaskrár.
- Ritrýndum greinum skal fylgja 600–800 orða ágrip á ensku ásamt heiti greinar á ensku. Ágrip á íslensku eru styttri eða á bilinu 200–300 orð. Þá skulu fylgja tillögur að fjórum til sex efnisorðum á íslensku og ensku. Ágrip ritstýrðra greina ættu að vera samhljóða á íslensku og ensku og á bilinu 200-300 orð að meðtalinni einni lokamálsgrein um höfund eða höfunda
- Ritrýndri grein eiga að fylgja upplýsingar um höfunda á íslensku og ensku, um 60 til 70 orð á hvoru máli.
- Gera þarf grein fyrir höfundum mynda og uppruna annarra gagna eftir því sem við á. Ef mikið er af myndefni eða öðru hliðstæðu efni má taka saman sérstaka skrá með upplýsingum um uppruna.
- Höfundar ritrýndra greina skila tveimur handritum í sniðmáti til ritstjóra Netlu, öðru fullbúnu og hinu án allra persónugreinanlegra upplýsinga
Höfundaréttur
Veftímaritið er í opnum aðgangi samkvæmt leyfi CC by 4.0 og er efni þess til frjálsrar dreifingar án endurgjalds fyrir notendur og stofnanir. Notendum og stofnunum er frjálst að deila, afrita og dreifa efninu á hvaða miðli eða sniði sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel í viðskiptalegum tilgangi. Notendum er heimilt að lesa, hlaða upp, afrita, dreifa, prenta, leita í og tengja við fullan texta greina án fyrirfram fenginnar heimildar útgefenda eða höfunda svo lengi sem vísað er til heimildar. Höfundar halda dreifingarétti á greinum sínum.
Birting í tímaritinu er höfundum að kostnaðarlausu.
Persónuvernd
Nöfn og netföng sem sett eru inni í vefkerfi tímaritsins eru einvörðungu notuð í þeim tilgangi sem uppgefinn er og verða ekki hagnýtt af eða afhent öðrum aðilum.