Ólíkur reynsluheimur nemenda í bóknámi og starfsnámi íframhaldsskólum – samanburður á bakgrunni,líðan, álagi og viðhorfum til náms

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/serritnetla.2025.2

Lykilorð:

starfsnám, bóknám, framhaldsskóli, viðhorf til náms, líðan í skóla, skuldbinding til náms

Útdráttur

Markmið rannsóknarinnar var að bera saman nemendur í bóknámi og starfsnámi í íslenskum framhaldsskólum út frá bakgrunni, viðhorfi þeirra til náms, álagi í námi og líðan í skóla. Meirihluti íslenskra nemenda velur bóknám í framhaldsskóla frekar en starfsnám og vitað er að forsendur námsvals og bakgrunnur þessara nemendahópa er gjarnan ólíkur. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að skuldbinding þeirra til náms og námsferill er einnig mismunandi. Mikilvægt er að skilja hvernig val á námsleið tengist ólíkri reynslu ungs fólks í framhaldsskóla, bæði til að aðstoða nemendur betur við val á námi og fyrir framhaldsskóla að þróa sína starfshætti. Rannsóknin byggir á gögnum úr Íslensku æskulýðsrannsókninni 2023–2024, en rafræn spurningakönnun var send til allra nemenda í framhaldsskólum á Íslandi. Þátttakendur voru 5718 nemendur á aldrinum 15–20 ára (31% svarhlutfall), sem voru skráðir í annaðhvort bóknám eða starfsnám. Spurt var meðal annars um bakgrunn, áhuga og ánægju af námi, námsálag, félagslega þátttöku, líðan í skóla og brotthvarf. Niðurstöðurnar sýna marktækan mun á bakgrunni nemenda. Bóknámsnemar áttu frekar foreldra með háskólamenntun og bjuggu við betri fjárhag en starfsnámsnemendur, á meðan starfsnámsnemar bjuggu frekar utan foreldrahúsa. Starfsnámsnemendur sýndu meiri áhuga á náminu, höfðu meiri ánægju af kennslustundum og lögðu meira upp úr nytsamlegri færni sem þeir lærðu í skólanum. Á móti upplifðu bóknámsnemar meira álag í náminu og vörðu meiri tíma í heimanám. Félagsleg þátttaka var meiri meðal bóknámsnema, sem oftar sögðust tilheyra sérstökum hópi í skólanum og leið betur í hléum. Enginn munur fannst á ánægju með skólann, en starfsnámsnemar voru líklegri til að íhuga að hætta í námi. Heildarniðurstaðan bendir til þess starfsnámsnemar hafi sterkari tengsl við námið en að bóknámsnemar leggi meira upp úr félagslegum tengslum. Rannsóknin veltir upp spurningum um forsendur námsvals og undirstrikar mikilvægi þess að styðja sérstaklega við starfsnámsnemendur til að draga úr brotthvarfi þeirra.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Niðurhal

Útgefið

2026-01-30

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)