Úr brunnum gleymskunnar
Skrif miðamerískra kvenna á fyrri hluta 20. aldar
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.33112/millimala.16.2.3Lykilorð:
Mið-Ameríka, Carmen Sobalvarro, Matilde Elena López, Pilar Bolaños, Yolanda OreamunoÚtdráttur
Í greininni sem hér fylgir er sjónum beint að skáldskaparskrifum miðamerískra kvenna við upphaf 20. aldar. Skoðað er hvernig umgjörð framúrstefnunnar, sem fól í sér hugmyndafræðilega endurskoðun og formtilraunir á sviði bókmennta, opnaði konum dyr til að komast inn á svið bókmenntanna, sem til þess tíma hafði verið mjög í höndum karla. Umrædd uppstokkun átti sér stað á mismunandi hraða í mismunandi löndum og innan mismunandi greina bókmennta. Eftir stutta almenna kynningu er ljósi varpað á það hvernig konur beindu síendurtekið sjónum að hlutverki og stöðu kvenna í skrifum sínum og spurt hvort efnistök þeirra ættu í raun að vera tilgreind sem eitt einkenna framúrstefnunnar til að komast hjá útskúfun umræddra höfunda úr fræðilegri umræðu um framúrstefnuna. Bókmenntaframlög Carmenar Sobalvarro (Níkaragva, 1908–1947/8), Matildu Elenu López (El Salvador, 1923–2010), Pilar Bolaños (El Salvador, 1923–1961) og Yolöndu Oreamuno (Kostaríku, 1916–1956), munu þjóna sem vegvísar til að auka skilning á efninu.