Mat á stöðu faglegs lærdómssamfélags í grunnskóla: Þróun mælitækis

Höfundar

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2019.15

Lykilorð:

faglegt lærdómssamfélag, mælitæki, grunnskóli

Útdráttur

Markmið þessarar rannsóknar er tvíþætt. Annars vegar að draga fram þá þætti sem einkenna lærdómssamfélag í íslenskum grunnskólum og hins vegar að þróa mælitæki sem gefur upplýsingar um stöðu lærdómssamfélags innan hvers skóla. Tilgangur slíks mælitækis er að fá yfirlit um stöðuna í hverjum skóla og gögn um helstu styrkleika og áskoranir sem þróun lærdómssamfélags innan skólans stendur frammi fyrir. Slíkar niðurstöður má nota af starfsfólki skólans til að rýna í eigið starf en einnig til að sníða ráðgjöf og leiðsögn að þörfum á hverjum stað eða ákveða hvert megi beina starfsþróun starfsfólks skólans. Mælitækið er spurningalisti með staðhæfingum sem mótaður var á grunni annarra spurningalista sem höfðu verið notaðir hér á landi og hann þróaður áfram. Forprófun fór fram meðal kennara og stjórnenda í 13 skólum og eftir gagngera endurskoðun var listinn lagður fyrir í 14 skólum til viðbótar.

Niðurstöður leiddu í ljós sex vel afmarkaða þætti sem eru að mestu leyti í samræmi við fyrri rannsóknir á einkennum lærdómssamfélags í skólum. Þættirnir eru (I) sameiginleg sýn og gildi, (II) gagnrýnin ígrundun eigin kennslu, (III) faglegur stuðningur við þróun kennsluhátta, (IV) dreifð og styðjandi forysta, (V) félagslegt andrúmsloft styður samstarf og (VI) starfsánægja. Næstu skref eru að staðfesta (e. validate) listann með hliðsjón af þátttöku fleiri skóla og eigindlegum viðtölum um sýn þátttakenda á hvort niðurstöður þeirra skóla rími við upplifun þeirra og reynslu af starfinu í skólanum

Um höfund (biographies)

Berglind Gísladóttir

Berglind Gísladóttir (berglindg@hi.is) er lektor í kennslufræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk B.Ed.-gráðu frá Kennaraháskóla Íslands 2002, M.Ed.- -gráðu í stærðfræðimenntun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007 og doktorsprófi í stærðfræðimenntun frá Columbia-háskóla í New York árið 2013. Rannsóknaráhugi Berglindar beinist að námslegum og félagslegum þáttum sem hafa áhrif á námsárangur nemenda. Einnig beinist áhuginn að fagþekkingu kennara og þróun skólastarfs.

Auður Pálsdóttir

Auður Pálsdóttir (audurp@hi.is) er lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk B.S.-gráðu í landfræði frá Háskóla Íslands 1991, B.Ed.-gráðu í grunnskólakennslu frá Kennaraháskóla Íslands 1993, M.Ed.-gráðu frá University of Aberdeen, Skotlandi 1996 og doktorsprófi í menntunarfræðum frá Háskóla Íslands 2014. Rannsóknarsvið hennar eru mat á skólastarfi og skólaþróun, landfræðikennsla og kennslufræði náttúru- og samfélagsgreina, sjálfbærnimenntun, greining námsefnis og útikennsla.

Anna Kristín Sigurðardóttir

Anna Kristín Sigurðardóttir (aks@hi.is) er prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og formaður námsbrautar um menntastjórnun og matsfræði. Hún er með B.Ed.-gráðu í grunnskólakennslu og M.Ed.-gráðu frá Kennaraháskóla Íslands. Doktorsgráðu lauk hún frá Háskólanum í Exeter 2006 á sviði menntastjórnunar. Rannsóknarsvið hennar tengjast menntastjórnun, skólaþróun, lærdómssamfélagi og námsumhverfi skóla og tengslum við kennsluhætti.

Birna María Svanbjörnsdóttir

Birna María Svanbjörnsdóttir (birnas@unak.is) er lektor við kennaradeild Hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Hún lauk B.Ed.-prófi frá Kennaraháskóla Íslands 1988 og starfaði sem grunnskólakennari um árabil. Hún lauk M.Ed.-gráðu frá Háskólanum á Akureyri 2005 og doktorsprófi í menntunarfræðum frá Háskóla Íslands 2015. Helstu áherslur í rannsóknum hennar lúta að starfsþróun kennara, starfstengdri leiðsögn ásamt uppbyggingu og þróun faglegs lærdómssamfélags.

Niðurhal

Útgefið

2020-01-30

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)

1 2 > >>