Eftirsóttasti minnihlutahópurinn? Fyrstu mánuðir fjögurra karla í grunnskólakennslu

Höfundar

  • Andri Rafn Ottesen
  • Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2019.1

Lykilorð:

Nýliðun, kennslukarlar, leiðsögn, kyn kennara, nýir kennarar

Útdráttur

Tilefni þessarar greinar er umræða um mögulegan kennaraskort í grunnskólum en einkum þó staða og fækkun kennslukarla í grunnskólum. Fræðilegur bakgrunnur hennar er annars vegar rannsóknir á leiðsögn við nýliða í starfi og hins vegar er sjónum beint að kennslukörlum í starfi. Sagt er frá rannsókn þar sem rætt var við fjóra nýbrautskráða karla og þeim fylgt eftir fyrstu sex mánuðina í starfi með þremur viðtölum við hvern þeirra skólaárið 2017–2018. Þeir voru spurðir hvernig hefði gengið í starfinu að loknu námi og hvort þeir hefðu upplifað einhverja þætti sem líklegt væri að tengdust því að þeir væru karlar. Meginrannsóknarspurningin var tvíþætt: Hvernig gengur nýbrautskráðum körlum á vettvangi starfsins og þurfa þeir sérhæfðan stuðning í starfinu á grundvelli kyns síns? Í greininni er gerð grein fyrir þremur þemum: Upplifun karlanna af nýjum starfsvettvangi og starfsumhverfinu þar; reynslu þeirra af leiðsögn við þá sem nýliða; og loks hvort og hvernig kyn og kyngervi birtast í frásögnum þeirra. Viðmælendur okkar töldu að sér hefði gengið vel að fóta sig í starfi og þeir voru ánægðir með leiðsögnina, þótt hún hefði ekki verið jafn formleg og mælt er með í fræðum og rannsóknum um leiðsögn. Svarið við spurningunni hvort það þurfi sérhæfðan stuðning eftir kyni er ekki einhlítt. Í svörum viðmælenda kom fram að í þremur skólanna sem þeir störfuðu hefðu verið karlaklúbbar sem þeir töldu að hefðu verið sér gagnlegir við að aðlagast skólabragnum. Höfundar telja rétt að kanna hvort kynskiptir klúbbar gagnist í því viðfangsefni að nýliðar haldist í starfinu. Mikilvægi markvissrar leiðsagnar fyrir nýliða í starfi er þó ekki kynbundið atriði heldur verður að leggja áherslu á að allir nýir kennarar, óháð kyni, fái góða leiðsögn þegar þeir stíga sín fyrstu skref í starfi. Kynjaskipt leiðsögn væri þá einungis hluti af heildstæðu og vönduðu kerfi nýliðaþjálfunar.

Um höfund (biographies)

Andri Rafn Ottesen

Andri Rafn Ottesen (andriot@gardaskoli.is) er grunnskólakennari við Garðaskóla. Hann lauk B.Ed.-gráðu í grunnskólakennarafræði vorið 2016 frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og M.Ed.-gráðu vorið 2018 frá sama skóla. Hann hefur brennandi áhuga á stöðu karla í kennslu og leiðsögn við nýliða og hefur beitt sér fyrir framgangi hugmynda um kandidatsár fyrir nýbrautskráða kennara. 

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson (ingo@hi.is) er prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann lauk BA- og cand.mag.-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Hann lauk einnig doktorsprófi í menntunarfræðum frá Wisconsin-háskóla í Madison. Hann hefur sérhæft sig í rannsóknum á menntastefnu, kennarastarfinu og kyngervi og menntun.

Niðurhal

Útgefið

2019-09-13

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar