Inngangur

Höfundar

  • Ragný Þóra Guðjohnsen

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/serritnetla.2025.5

Útdráttur

Sérrit þetta er fyrra sérrit af tveimur þar sem birtar eru fræðigreinar sem nýta gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni (ÍÆ) sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands framkvæmir fyrir Mennta- og barnamálaráðuneytið á grundvelli 12 gr. æskulýðslaga nr. 70/2007.

Markmið ÍÆ er að safna gögnum um velferð og viðhorf barna og ungs fólks til ýmissa farsældarvísa sem tengjast menntun, lífsgæðum og félagslegri stöðu, heilsu og vellíðan, öryggi og vernd, félagslegum tengslum og þátttöku í íþrótta-, tómstunda- og samfélagsstarfi.

Grunnskólakönnun ÍÆ var fyrst lögð fyrir vorið 2022 (4.–10. bekk) og síðan árlega eftir það. Sumarið 2022 var sérhönnuð ÍÆ spurningalistakönnun jafnframt lögð fyrir ungmenni utan skóla (18–24 ára). Framhaldsskólakönnun ÍÆ var fyrst lögð fyrir nemendur 16–24 ára haustið 2023 og síðan annað hvert ár.

Áherslur og aðferðafræði ÍÆ byggir á grunni tveggja alþjóðlegra rannsókna sem framkvæmdar hafa verið á Íslandi um langt skeið. Framkvæmd þeirra hefur frá 2022 verið felld inn í fyrirlögn grunnskólakönnunnar ÍÆ. Þetta er annars vegar Evrópska vímuefnarannsóknin (ESPAD) sem hófst árið 1995. Markmið hennar er að mæla ýmiss konar áhættuhegðun hjá ungmennum í Evrópu. Rannsóknin er spurningalistakönnun lögð fyrir hjá 15 ára ungmennum í grunnskólum á fjögurra ára fresti. ESPAD 2024 var áttunda gagnasöfnun rannsóknarinnar hér á landi. Hins vegar er um að ræða rannsóknina Heilsa og lífskjör skólabarna (HBSC). Kannanir HBSC fara fram á fjögurra ára fresti og hafa verið lagðar fyrir á Íslandi frá árinu 2006. Markmið rannsóknarinnar er að afla upplýsinga hjá börnum og ungmennum um líkamlega og andlega heilsu, lífsánægju, félagsleg tengsl, lífsstíl, áhættuhegðun, svefn, hreyfingu, næringu, notkun áfengis og annarra vímuefna, sem og upplifun af stuðningi í skóla og fjölskyldu. Rannsóknin er spurningalistakönnun sem er lögð fyrir í grunnskólum á fjögurra ára fresti hjá 11, 13 og 15 ára börnum og ungmennum. Rannsóknin er framkvæmd í samstarfi við Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Fyrirlögn HBSC var síðast árið 2022 en gagnasöfnun 2026 er framundan.

Niðurstöður bæði ESPAD og HBSC veita mikilvægar upplýsingar um stöðu ýmissa velferðarþátta hjá börnum og ungmennum hér á landi og opna samhliða á möguleika á samanburði íslenskra og erlendra niðurstaðna.

Það er von okkar sem að sérritinu standa að niðurstöður nýtist bæði í kennslu og hjá sérfræðingum á vettvangi sem starfa með börnum og ungmennum.

Ritstjórum sérritsins Kristjáni Katli Stefánssyni og Valgerði S. Bjarnadóttur eru færðar innilegar þakkir fyrir ómælda vinnu við sérritið. Sömuleiðis fær Anna Bjarnadóttir verkefnisstjóri bestu þakkir fyrir alla vinnuna við útgáfuferil ritsins.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Niðurhal

Útgefið

2026-02-19

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)