Fjárhættuspilahegðun ungmenna á Íslandi: Samanburður ániðurstöðum ESPAD-spurningakönnunar frá 2015 og 2024

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/serritnetla.2025.1

Lykilorð:

ungmenni, fjárhættuspilahegðun, algengi, tíðni, tegundir, áhættusemi, kyn

Útdráttur

Á undanförnum misserum hefur mátt greina breytingar í ástundun fjárhættuspila hér á landi. Einkum hafa veðmál sem snúa að úrslitum íþróttaleikja verið áberandi og bent hefur verið á aukna markaðssetningu fjárhættuspila sem beinast að ungu fólki. Rannsókn þessi byggir á gögnum úr Evrópsku vímuefnarannsókninni (European Survey Project on Alcohol and other Drugs, ESPAD) árin 2015 og 2024. Markmið rannsóknarinnar var að kanna þróun á algengi fjárhættuspilahegðunar frá 2015 til 2024 eftir kyni, tíðni spilahegðunar („fátíð“: „mánaðarlega eða sjaldnar“; „tíð“: „tvisvar í mánuði eða oftar“), vettvangi spilunar („á stað“, „á neti“, „bæði á stað og neti“) og eftir því hversu áhættusöm hún er („minna áhættusöm“: happdrætti, hefðbundin spil; „meira áhættusöm“: spilakassar, veðmál). Þátttakendur voru nemendur í 10. bekk grunnskóla. Þegar niðurstöður mælinganna 2015 og 2024 voru bornar saman mátti sjá að algengi „fátíðrar spilunar“ hafði aukist verulega á tímabilinu, bæði hjá drengjum og stúlkum og óháð því hvort spilað var „á stað“, „á neti“ eða „bæði á stað og neti“. Algengi „tíðrar“ fjárhættuspilahegðunar hafði sömuleiðis aukist verulega þó hún væri ekki jafn mikil og í „fátíðu spiluninni“, og var það óháð kyni og því hvort spilað var „á stað“ eða „á neti“. Þegar kannað var algengi „minna áhættusamrar“ og „meira áhættusamrar“ fjárhættuspilunar kom í ljós að mesta aukningin hafði orðið í „fátíðri“ fjárhættuspilun sem var „minna áhættusöm“ þó aukning hafi einnig orðið á „fátíðri“ fjárhættuspilun sem var „meira áhættusöm“ en þar var þátttaka drengja mun meiri en stúlkna. Niðurstöðurnar varpa ljósi á nauðsyn þess að grípa inn í þessa stöðu með því að skýra regluverk um fjárhættuspil og auka fræðslu og forvarnir með það að markmiði að draga úr fjárhættuspilahegðun hjá ungu fólki hér á landi.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Niðurhal

Útgefið

2026-01-30