Sjálfsskaðahegðun ungmenna í 10. bekk á Íslandi:Algengi og forspárþættir

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/serritnetla.2025.3

Lykilorð:

sjálfsskaðahegðun, ungmenni, félagsfærni, trú á eigin getu, samskipti við foreldra, svefn

Útdráttur

Sjálfsskaðahegðun (e. self-harm; self-injurious behavior) hefur samkvæmt rannsóknum verið talin ein algengasta orsök glataðra góðra æviára (e. DALYs) og meðal helstu dánarorsaka ungs fólks í Evrópu. Hegðunin á oft rætur að rekja til vanlíðanar vegna erfiðra tilfinninga og hugsana og er ein birtingarmynd geðraskana hjá ungmennum. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna algengi sjálfsskaða meðal ungmenna á Íslandi og tengsl sjálfsskaðahegðunar við mat ungmenna á eigin félagsfærni, trú á eigin getu til að leysa vandamál, samskiptum við foreldra og eigin svefni. Leiðrétt var fyrir kvíða og depurð. Gögn rannsóknarinnar byggja á grunnskólakönnun Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar á árunum 2023–2025. Niðurstöður sýndu að rúmlega 16% ungmenna í 10. bekk greindu frá að hafa skaðað sig viljandi einu sinni eða oftar á síðustu 12 mánuðum. Stúlkur reyndust um helmingi líklegri en drengir til að hafa stundað sjálfsskaða. Jafnframt kom fram marktækt samband sjálfsskaðahegðunar við félagsfærni, trú ungmenna á eigin getu og svefn. Þá var samband milli sjálfsskaðahegðunar og þess hvernig ungmennin mátu samskipti sín við foreldra. Þegar leiðrétt var fyrir kvíða og depurð minnkaði samband allra þáttanna við sjálfsskaða en þó misjafnlega mikið. Kvíði og depurð virðast því eiga þátt í sambandi þáttanna við sjálfsskaða. Af niðurstöðum má ráða að mikilvægt forvarnarinngrip vegna sjálfsskaða sé að hlúa markvissar að félagsfærni og sjálfstiltrú ungmenna og að tryggja þeim nægan svefn. Jafnframt að ungmenni eigi vísan stuðning foreldra og annarra uppeldisaðila þegar á þarf að halda. Tryggja þarf bæði ungmennum og uppeldisaðilum fræðslu og aðgengi að stuðningsúrræðum sérfræðinga svo sem sálfræðinga og geðlækna, sér í lagi þegar ungmenni glíma við alvarlega vanlíðan og hafa stundað sjálfsskaðahegðun. Sjálfsskaði ungmenna er ekki einstaklingsbundin áskorun heldur samfélagslegt verkefni. Með samstilltu átaki og ábyrgð uppeldisaðila og velferðarkerfa um land allt má skapa umhverfi þar sem ungmenni fá stuðning og tækifæri til farsældar.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Niðurhal

Útgefið

2026-01-30