Sýn deildarstjóra á góðan undirbúningstíma í leikskólum
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/netla.2025/19Lykilorð:
undirbúningstími, faglegt samtal, leikskólastarf, lýðræðisleg þátttaka, starfsþróunÚtdráttur
Í þessari grein er fjallað um sýn deildarstjóra á undirbúningstíma í leikskólum og hvernig hann er nýttur til að efla faglega þróun og auka gæði leikskólastarfs. Byggt er á eigindlegum gögnum sem safnað var á fundum með deildarstjórum í níu leikskólum. Voru gögnin greind af rannsakendum við Háskóla Íslands með hliðsjón af greiningarlíkani Max Weber um góða fyrirmynd. Markmiðið var að móta skilgreiningu á hvað einkennir góðan undirbúningstíma, greina hvar veruleikinn mætir draumsýninni og hversu langt er þar á milli og móta tillögur til umbóta. Niðurstöðurnar sýna að deildarstjórunum þótti skipulagður, reglulegur og samfelldur undirbúningstími styrkja fagmennsku þeirra, auka samstarf innan leikskólans og stuðla að betra náms- og leikumhverfi barna. Lögðu þeir áherslu á mikilvægi faglegs samtals meðal leikskólakennara og annarra sérfræðinga. Á sama tíma kom fram að þátttaka foreldra og barna í skipulagi og mati á starfinu var takmörkuð, sem gæti hamlað lýðræðislegri þátttöku og inngildingu. Einnig komu fram áskoranir við að finna jafnvægi milli undirbúningsvinnu utan deildar og beinnar þátttöku kennara í starfi með börnum. Helstu tillögur til umbóta fela í sér að undirbúningstími verði meira samþættur daglegu leikskólastarfi og nýttur í virku samráði við börn, foreldra og annað fagfólk. Með markvissri nýtingu undirbúningstíma eru deildarstjórar betur í stakk búnir til að mæta fjölbreyttum námsþörfum barna og stuðla að inngildandi og faglegu leikskólastarfi, en þar er faglegt samtal mikilvægt.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2025 Anna Magnea Hreinsdóttir, Sara Margrét Ólafsdóttir, Margrét Sigríður Björnsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).
