Frímínútur í tveimur grunnskólum: Fyrirkomulag og sjónarmið starfsfólks sem sinnirgæslu nemenda

Höfundar

  • Kristín Þóra Möller
  • Hermína Gunnþórsdóttir

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2017.3

Lykilorð:

frímínútur, skólabragur, agastefna skóla, starfsfólk skóla, virkt eftirlit

Útdráttur

Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig frímínútum er háttað í tveimur grunnskólum, hversu mikilvæg agastefna skólanna virðist vera fyrir starfsfólk skólanna í daglegum störfum og að rýna í samspil frímínútna og skólabrags skólanna. Rannsóknin fór fram í tveimur grunnskólum í einu íslensku sveitarfélagi vorið 2014. Eigindlegar rannsóknaraðferðir voru notaðar til þess að rannsaka viðhorf starfsfólks skólanna með viðtölum. Viðmælendur voru fjórir, tveir í hvorum skóla. Einnig voru vettvangsathuganir gerðar í báðum skólum í frímínútum og ýmis gögn um skólana greind, meðal annars niðurstöður skólanna í könnunum á vegum Skólapúlsins. Niðurstöður sýna að viðmælendur eru ósáttir við það hve starfslýsingar þeirra eru víðtækar og að lítil sem engin formleg starfsþjálfun er í boði. Markviss agastefna virðist nýtast starfsfólki vel sem verkfæri, umfram almennar skólareglur, og allt bendir til þess að flestum nemendum líði vel í frímínútum. Töluvert ber þó á aðgerðaleysi og agavandamálum í frímínútum skólanna tveggja, að mati viðmælenda. Með skipulegum leikjum og valkvæmum frímínútum væri hægt að koma í veg fyrir aðgerðaleysi, agavandamál og einelti.

 

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Útgefið

2017-11-29

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)