Áherslur skólastjóra í leik- og grunnskólum í mótun og viðhaldi heilbrigðrar vinnustaðamenningar

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2025/23

Lykilorð:

vinnustaðamenning skóla, skólastjórar, valdefling kennara, sálrænt öryggi, starfsánægja, vellíðan

Útdráttur

Greinin fjallar um áherslur skólastjóra leik- og grunnskóla í mótun og viðhaldi heilbrigðrar vinnustaðamenningar sem stuðlar að vellíðan og starfsánægju kennara. Heilbrigð vinnustaðamenning skóla vísar til þeirra gilda, viðhorfa og samskipta sem móta daglegt starf innan skólans og styður við vellíðan starfsfólks. Rannsóknir sýna að heilbrigð vinnustaðamenning skóla stuðlar að aukinni starfsánægju kennara og eflir vellíðan þeirra og sálrænt öryggi. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við átta skólastjóra sem starfa í skólum sem sýnt hafa fram á jákvæða niðurstöðu í könnunum um starfsánægju og vinnustaðamenningu. Við greiningu gagna, sem byggði á þemagreiningu, komu fram þrjú meginþemu: Skýrt skipulag með trausti og sveigjanleika, hjálpsemi og mildi, og fagmennska og ástríða. Niðurstöður rannsóknarinnar varpa ljósi á áherslu skólastjóranna á að skapa skýran faglegan ramma sem veitir starfsfólki festu og leiðsögn, en um leið sveigjanleika til að beita eigin hæfni. Þeir ræktuðu traust með opnum samskiptum, stöðugri eftirfylgni og skýrri ábyrgðarskyldu. Vinnustaðamenning skólanna einkenndist af hjálpsemi og mildi þar sem starfsfólk fann fyrir virðingu, stuðningi og að tilheyra hópi. Fagmennska og ástríða fyrir starfi og velferð barnanna var jafnframt drifkraftur sem styrkti bæði metnað og innri hvata starfsfólks. Þá benda niðurstöður rannsóknarinnar til þess að heilbrigð vinnustaðamenning spretti af jafnvægi milli skýrs ramma og sveigjanleika og sameiginlegra gilda. Niðurstöðurnar geta nýst stjórnendum, sveitarfélögum og menntayfirvöldum til að efla vinnustaðamenningu í skólum, styðja stjórnendur og kennara og bæta líðan þeirra og árangur í starfi.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Niðurhal

Útgefið

2025-12-22

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)

1 2 > >>