Um Alejandrinu Gutiérrez
Abstract
Rithöfundurinn Alejandrina Gutiérrez fæddist árið 1948 í Managva, Níkaragva. Hún bjó um tíma í Venesúela en fluttist til Kosta Ríka á unglingsárum og lagði stund á viðskiptafræði við Háskóla Kosta Ríku (Universidad de Costa Rica). Hún hóf rithöfundarferil sinn í ritsmiðjum ungskálda (sp. tertulias literarias) og smásagnaritun hefur ætíð verið hennar helsti birtingarvettvangur. Smásögur Gutiérrez hafa meðal annars birst í safnritinu Relatos de mujeres: Antología de narradoras de Costa Rica (Sögur kvenna: Safnrit kvenrithöfunda frá Kosta Ríku), sem út kom árið 1993.Downloads
Published
2020-10-01
Issue
Section
Translations
How to Cite
Um Alejandrinu Gutiérrez. (2020). Milli Mála, 11(1). https://ojs.hi.is/index.php/millimala/article/view/3239