Og svo einhvern veginn bara breyttist bikiníröndin, hún þrengdist alltaf og þrengdist ...: Um kynfærarakstur kvenna

Höfundar

  • Hildur Friðriksdóttir
  • Andrea Hjálmsdóttir

Lykilorð:

Kynjafræði, kynfæri kvenna, staðalímyndir, kynfærarakstur

Útdráttur

Í byrjun 20. aldar fóru konur að fjarlægja hár undir höndum og á fótum og að undanförnu hefur það færst í vöxt að konur kjósi einnig að fjarlægja öll hár af kynfærasvæðinu. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar um líkamshárarakstur kvenna, sem gefur vísbendingu um hversu rótgróin og viðtekin sú hugmynd er að kvenleiki og líkamshár fari ekki saman. Í þessari grein er kynfærarakstur kvenna skoðaður þar sem sérstök áhersla er lögð á að varpa ljósi á hvers vegna konur kjósa í síauknum mæli að fjarlægja öll skapahárin. Greiningin byggir á eigindlegri rannsókn þar sem tekin voru átta opin viðtöl við konur á aldrinum 20-36 ára, sem allar höfðu reynslu af því að fjarlægja öll skapahár sín. Niðurstöðurnar renna stoðum undir þær fullyrðingar að nauðrakstur á skapahárum sé orðinn hið hefðbundna viðmið þegar kemur að skapahárasnyrtingu ungra kvenna en helstu ástæður sem nefndar voru fyrir rakstrinum sneru að hreinlæti og aukinni ánægju í kynlífi. Allir viðmælendur tóku skýrt fram að ákvörðun þeirra um að fjarlægja öll skapahárin hefði alfarið verið tekin á þeirra eigin forsendum. Þó mátti í frásögnum þeirra allra greina vísbendingar um að utanaðkomandi þrýstingur og samfélagsleg viðmið hefðu haft áhrif á ákvarðanatöku þeirra.

Um höfund (biographies)

  • Hildur Friðriksdóttir

    M.A.-nemi í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri.

  • Andrea Hjálmsdóttir

    Lektor við Háskólann á Akureyri.

Niðurhal

Útgefið

15.10.2023

Tölublað

Kafli

Fræðigreinar

Hvernig skal vitna í

Og svo einhvern veginn bara breyttist bikiníröndin, hún þrengdist alltaf og þrengdist ...: Um kynfærarakstur kvenna. (2023). Íslenska þjóðfélagið, 5(1), 5-24. https://ojs.hi.is/index.php/tf/article/view/3756

Svipaðar greinar

1-10 af 22

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.