Mæður á þriðju vaktinni í kórónaveirufaraldrinum

Höfundar

  • Andrea Hjálmsdóttir
  • Valgerður S. Bjarnadóttir

Lykilorð:

Verkaskipting kynjanna, Tilfinningavinna, Hugræn byrði, Kórónaveirufaraldurinn

Útdráttur

Ljóst er að kórónaveirufaraldurinn sem herjað hefur á heimsbyggðina frá því í ársbyrjun 2020 hefur haft ófyrirsjáanleg og margþætt samfélagsleg áhrif. Barnafjölskyldur eru þar ekki undanskildar, en á tímum harðari samkomutakmarkana en flestir hafa upplifað í samtímanum hefur líf barna og foreldra þeirra raskast mikið. Í þessari grein er sjónum sérstaklega beint að upplifun mæðra í gagnkynja parasamböndum og hvernig þær sinntu tilfinningavinnu og hugrænni byrði í daglegu lífi í kjölfar hertra samkomutakmarkana í fyrstu bylgju faraldursins. Rannsóknin byggir á persónulegum, opnum dagbókarfærslum tæplega fjörutíu mæðra yfir tveggja vikna tímabil í mars og apríl vorið 2020. Niðurstöður rannsóknarinnar eru kynntar undir tveimur meginþemum. Fyrra þemað varpar ljósi á birtingarmyndir tilfinningavinnunnar sem mæðurnar lýstu endurtekið í hugleiðingum sínum. Seinna þemað endurspeglar þá miklu hugrænu byrði sem þær upplifðu, sem kristallaðist meðal annars í ábyrgð þeirra á að skipuleggja og verkstýra verkefnum heima fyrir. Því fylgdi mikið álag, enda þurftu þær að endurskipuleggja veruleika sinn og taka ákvarðanir sem þær höfðu ekki staðið frammi fyrir að taka áður.

Um höfund (biographies)

Andrea Hjálmsdóttir

Lektor við Háskólann á Akureyri.

Valgerður S. Bjarnadóttir

Nýdoktor við Háskóla Íslands.

Niðurhal

Útgefið

21.10.2023

Hvernig skal vitna í

Hjálmsdóttir, A., & Bjarnadóttir, V. S. (2023). Mæður á þriðju vaktinni í kórónaveirufaraldrinum. Íslenska þjóðfélagið, 12(1), 22–33. Sótt af https://ojs.hi.is/index.php/tf/article/view/3875

Tölublað

Kafli

Fræðigreinar