Persónulegar frásagnir fjöltyngdra barna, málnotkun þeirra og umræðuefni, í samanburði við eintyngd börn
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/netla.2026/5Lykilorð:
persónulegar frásagnir, fjöltyngi, málþroski, íslenska sem annað mál, grunnskólabörnÚtdráttur
Markmið þessarar rannsóknar var að fá innsýn í daglega málnotkun fjöltyngdra barna á Íslandi í samanburði við eintyngd börn með því að skoða persónulegar frásagnir þeirra og setja niðurstöðurnar í alþjóðlegt samhengi. Alþjóðlegur rannsóknarhópur hefur þróað aðferð til að laða fram persónulegar frásagnir hjá börnum sem nefnist Global TALES og hefur hún verið notuð í 26 mismunandi löndum. Í þessari rannsókn var aðferðin notuð til að taka viðtöl við 42 íslensk börn á aldrinum 9;3 til 10;9 ára, 27 eintyngd og 15 fjöltyngd. Öll fjöltyngdu börnin höfðu hafið grunnskólanám á Íslandi og þau voru öll fædd á landinu nema eitt. Mörg fjöltyngdu börnin töluðu íslensku og ensku heima hjá sér auk heimamáls eða heimamála foreldranna. Menntunarstig foreldra var hærra í eintyngda hópnum en í þeim fjöltyngda. Niðurstöður sýndu að fjöltyngdu börnin tjáðu sig í marktækt færri segðum/setningum, þau notuðu marktækt færri orð og orðanotkun þeirra var ekki eins fjölbreytileg og hjá eintyngdu börnunum. Enn fremur gerðu þau hlutfallslega mun fleiri málfræðivillur. Í Global TALES-aðferðinni eru notuð sex kveikjuorð (hamingjusamur/spenntur, áhyggjufullur, reiður/pirraður, stoltur, vandræði og mikilvægt) til að laða fram persónulegar frásagnir. Börnin í báðum hópum töluðu um að hamingjustundir fælust í samveru með fjölskyldunni. Báðir hópar nefndu samskipti við vini og systkini í tengslum við atburði sem reittu þau til reiði og þau voru stolt af persónulegum sigrum. Skólinn kom oftar fyrir sem umræðuefni fjöltyngdu barnanna, bæði sem áhyggjuefni og einnig þegar þau töluðu um mikilvæg atriði. Niðurstöðurnar gefa til kynna að fjöltyngd börn sem hafa alist upp á Íslandi þurfi mun markvissari kennslu í íslensku, til að geta auðveldlega deilt með öðrum persónulegum atburðum úr daglegu lífi, en að umræðuefnin séu hliðstæð og hjá eintyngdum jafnöldrum. Jafnframt sýna niðurstöðurnar að hægt er að bera saman málfærni ein- og fjöltyngdra barna með því að nota Global TALES-aðferðina.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2026 Jóhanna Thelma Einarsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).