Orðaheimurinn – Fýsileikarannsókn ámálörvunarefni fyrir fjöltyngd leikskólabörn
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/netla.2025/21Lykilorð:
Orðaheimurinn, málörvun, leikskóli, fjöltyngi, fýsileikarannsókn, félagslegt réttmætiÚtdráttur
Meginmarkmið þessarar fýsileikarannsóknar var að leggja mat á hvernig málörvunarefnið Orðaheimurinn (World of Words) nýtist í íslensku leikskólaumhverfi. Annars vegar var fastheldni (e. fidelity) athuguð, þ.e. hversu nákvæmlega starfsfólkið fylgdi kennsluleiðbeiningum. Hins vegar var félagslegt réttmæti (e. social validity) skoðað eða mat leikskólastarfsfólks á hvort kennsluefnið hentaði íslensku leikskólaumhverfi. Málörvunarefnið var þýtt úr ensku og staðfært, en það kemur upphaflega frá Bandaríkjunum þar sem það hefur verið ítarlega rannsakað. Prófaðar voru tvær mismunandi útfærslur efnisins í tveimur leikskólum í Reykjavík. Annar leikskólinn fylgdi kennslustýrðri nálgun með nákvæmum leiðbeiningum um framkvæmd og innleiðingu Orðaheimsins. Hinn leikskólinn fékk öll málörvunargögn Orðaheimsins án kennsluleiðbeininga og lagði efnið inn með frjálsri kennsluaðferð. Þátttakendur voru fimmtán 3–4 ára fjöltyngd börn sem og þrír leikskólakennarar og tveir starfsmenn á þremur deildum tveggja leikskóla. Eigindlegum aðferðum var beitt við söfnun og greiningu gagnanna. Tekin voru viðtöl við starfsfólkið, það beðið um að fylla út gátlista og halda dagbók auk þess sem skoðaðar voru upptökur frá íhlutunarstundum. Niðurstöður út frá greiningu dagbókarfærslna og gátlistum, þar sem rýnt var í innlögn og notkun efnisins, leiddu í ljós að þar sem farið var eftir kennslustýrðu nálguninni notaði starfsfólkið málörvunarefni Orðaheimsins mun oftar og markvissar en þar sem frjálsu nálguninni var fylgt. Starfsfólki beggja leikskóla þótti efnið nýtast vel í málörvunarstundum og taldi það henta bæði ein- og fjöltyngdum börnum sem þurfa á aukinni málörvun að halda. Þetta bendir til þess að málörvunarefnið sé félagslega réttmætt, þ.e. að það henti íslensku leikskólaumhverfi og að íhlutun Orðaheimsins geti reynst fjöltyngdum jafnt sem eintyngdum börnum gagnleg. Fýsileikarannsóknir af þessu tagi eru nauðsynlegar til að aðlaga erlent málörvunarefni að íslensku leikskólaumhverfi og sem undirbúningur að viðameiri rannsóknum þar sem gagnsemi íhlutunar er rannsökuð frekar með t.d. samanburðarrannsóknum.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2025 Sædís Dúadóttir Landmark, Svava Heiðarsdóttir, Jóhanna Thelma Einarsdóttir, Þóra Másdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).
