Frá nýlendustefnu til loftslagsvár
Ísbirnir í skáldverkum eftir James Hogg, Helen McClory og Vicki Jarrett
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.33112/millimala.16.2.4Lykilorð:
ísbirnir, nýlendustefna, loftslagsvá, norðurslóðir, skoskar bókmenntirÚtdráttur
Þessi grein fjallar um þrjú skosk bókmenntaverk, The Surpassing Adventures of Allan Gordon eftir James Hogg (1837), „The Companion“ eftir Helen McClory (2018) og Always North eftir Vicki Jarrett (2019). Öll verkin gerast á norðurslóðum og fjalla um ísbirni. Greining þessara bókmenntaverka sýnir hvernig þau endurspegla tvö ólík stig í samskiptum okkar við norðurslóðir, séð frá evrópsku (bresku/skosku) sjónarhorni. Fyrsta verkið speglar viðhorf frá fyrri hluta nítjándu aldar, sem byggðu á heimsvaldastefnu og kynjuðum hugmyndum þess tíma. Hinar tvær sögurnar endurspegla hins vegar umtalsverðar breytingar á viðhorfum og sýna fram á skarpa vitund – og sektarkennd – gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga af mannavöldum. Ísbjörninn, dýrið sem tengist norðurslóðum hvað sterkast, gegnir lykilhlutverki í meðferð allra þriggja höfunda á þessum málum. Verkin lýsa ísbirninum sem félaga eða fylgju aðalpersónanna, þar sem hann er miðlægur í tengslum manna við norðurslóðir. Nýrri verkin, eftir McClory og Jarrett, hvetja jafnframt til túlkunar á ísbirninum sem draugalegri veru sem táknar „umhverfislegar ásóknir“ vegna loftslagsvár nútímans. Auk þess má merkja greinileg áhrif af sjónarhorni frumbyggja norðurslóða á þessi nútímaverk, þar sem ísbirninum er lýst sem andlegum leiðsögumanni og tákni um styrk og seiglu. Þannig flétta McClory og Jarrett hefðbundinni vistfræðilegri þekkingu (TEK) inn í frásögnina og undirstrika hvernig allar lifandi verur eru háðar hver annarri.