Mat kennara á félagslegum tengslum í grunnskólum og samband þeirra við námsárangur og starfshætti
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/tuuom.2017.26.6Lykilorð:
félagsleg tengsl, starfshættir, fagauður, námsárangur, grunnskólarÚtdráttur
Í þessari grein er dregin upp mynd af félagslegum tengslum kennara í 20 íslenskum grunnskólum. Nýtt voru gögn sem safnað var í rannsóknarverkefninu Starfshættir í íslenskum grunnskólum frá kennurum og foreldrum í 20 grunnskólum auk gagna frá Menntamálastofnun um niðurstöður á samræmdum prófum. Búinn var til kvarði, sem metur félagsleg tengsl á grundvelli svara 440 kennara við tíu spurningum í umfangsmeiri spurningalista. Niðurstöður sýna að meirihluti kennara telur félagsleg tengsl í sínum skóla vera mikil. Ekki fannst samband milli félagslegra tengsla og árangurs á samræmdum prófum. Kennarar í heildstæðum grunnskólum, þar sem félagsleg tengsl voru mikil, lögðu frekar miserfið verkefni fyrir nemendur en kennarar í grunnskólum þar sem félagsleg tengsl voru minni, en ekki var algengara að þeir legðu fyrir verkefni eftir áhuga nemenda. Foreldrar barna í grunnskólum þar sem félagsleg tengsl voru mikil voru ánægðari með skólana en foreldrar í skólum þar sem þau voru að meðaltali minni.##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
##plugins.themes.default.displayStats.noStats##
Niðurhal
Útgefið
2018-01-02
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Leyfi

Tímaritið er öllum opið samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 International License.