Ráðum við frekar Guðmund og Önnu heldur en Muhammed og Aishu?

Áhrif múslímsks nafns í ferilskrám

Höfundar

  • Kári Kristinsson
  • Margrét Sigrún Sigurðardóttir

Lykilorð:

ráðningarferlið, innflytjendur, fordómar, Múslímar, Íslam

Útdráttur

Bæði innlendar og erlendar rannsóknir benda til þess að sérstaklega mikilla fordóma gæti gagnvart einstaklingum með múslímskan bakgrunn. Í þessari rannsókn ákveðið að skoða fordóma gagnvart múslímskum innflytjendum á Íslandi. Starfslýsing og fjórar ferilskrár voru settar upp og var almenningur beðinn að meta einn umsækjenda af handahófi. Umsækjendur voru eins að öllu leyti öðru en því að nöfn (íslensk tilvísun, múslímsk tilvísun) og kyn (kona, karl) voru mismunandi. Niðurstöður benda til þess að töluverðir fordómar séu til staðar gagnvart einstaklingum með nöfn sem gefa til kynna að þeir séu múslímar. Þrátt fyrir að eiginleikar aðferðafræðinnar leiði til vanmats á fordómum teljast þeir töluverðir. Launamunur, sem myndast vegna múslímsks bakgrunns, er til dæmis töluvert meiri en launamunur kynjanna á Íslandi. Í samræmi við erlendar rannsóknir virðast þeir fordómar vera meiri gagnvart kvenkyns heldur en karlkyns múslímskum umsækjendum.

Um höfund (biographies)

Kári Kristinsson

Dósent við Háskóla Íslands.

Margrét Sigrún Sigurðardóttir

Lektor við Háskóla Íslands.

Niðurhal

Útgefið

22.10.2023

Hvernig skal vitna í

Kristinsson, K., & Sigurðardóttir, M. S. (2023). Ráðum við frekar Guðmund og Önnu heldur en Muhammed og Aishu? Áhrif múslímsks nafns í ferilskrám. Íslenska þjóðfélagið, 10(2), 97–111. Sótt af https://ojs.hi.is/index.php/tf/article/view/3894

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)

Svipaðar greinar

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.