Editorial preface

Authors

  • Ingi Rúnar Eðvarðson
  • Jón Gunnar Bernburg
  • Þóroddur Bjarnason

Abstract

Íslenska þjóðfélagið: Tímarit Félagsfræðingafélags Íslands hóf göngu sína 1. janúar 2010 og er fimmta útgáfuár þess því nú á enda. Tímaritinu var ætlað að vera vettvangur rannsókna á íslensku þjóðfélagi á grundvelli ólíkra aðferðafræðilega hefða. Það er mat ritstjóra að það hafi að mörgu leyti tekist vel. Þær 27 greinar sem birst hafa í fyrstu fimm árgöngum tímaritsins spanna allt frá jafnréttismálum til búferlaflutninga og samgöngubóta, frá afrekísþróttamönnum til kynfæraraksturs og frá kúrekamyndum til efnahagshruns. Auk framlaga félagsfræðinga er þar að finna framlög fræðimanna á sviði afbrotafræði, kynjafræði, menntunarfræði, stjórnmálafræði, sálfræði, landfræði, viðskiptafræði og hagfræði. Niðurstöður byggja meðal annars á spurningakönnunum, djúpviðtölum, opinberum gögnum, innihaldsgreiningu dagblaða, ljósvakamiðla og fjölmiðla og kenningalegri greiningu. Um helmingur höfunda er með fasta stöðu við íslenska eða erlenda háskóla en um helmingur starfar á margvíslegum öðrum vettvangi eða stundar framhaldsnám í félagsfræði eða skyldum greinum.

Author Biographies

  • Ingi Rúnar Eðvarðson

    Professor at the University of Iceland.

  • Jón Gunnar Bernburg

    Professor at the University of Iceland.

  • Þóroddur Bjarnason

    Professor at the University of Akureyri.

Published

2023-10-15

Issue

Section

From the editor

How to Cite

Editorial preface. (2023). The Icelandic Society, 5(1), 3-4. https://ojs.hi.is/index.php/tf/article/view/3755

Most read articles by the same author(s)

1 2 > >>