Tilgangur og framtíð menntunar í ljósi stefnumörkunar OECD og UNESCO til 2030

Höfundar

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/serritnetla.2022.83

Lykilorð:

stefnumörkun, framtíð menntunar, alþjóðastofnanir, tilgangur menntunar, aðgengi

Útdráttur

Í umræðu um skóla og menntun, þar sem gjarnan er tekist á um tæknileg atriði sem snúa að kerfi og skipulagi, skortir iðulega umræðu um raunverulegan tilgang menntunar í samhengi við heiminn og framtíðina. Þetta er ekki síst vandamál nú á dögum, þegar staðið er frammi fyrir alvarlegum ógnum gagnvart samfélagi og náttúru. Ítrekað hefur verið bent á ábyrgð og skyldu menntakerfisins þegar kemur að því að takast á við samfélagslegar breytingar á 21. öldinni en á sama tíma hefur verið bent á togstreitu milli ólíkra hagsmunaafla í ríkjandi orðræðu og stefnumótun í menntakerfinu.

Í greininni er birt greining á stefnumótunarskjölum frá OECD og UNESCO. Skjölin voru greind með það að markmiði að varpa ljósi á annars vegar ríkjandi hugmyndir um tilgang menntunar fyrir framtíðina og hins vegar framtíð hverra endurspeglast í skjölunum. Niðurstöður endurspegla ólíka grundvallarsýn stofnananna tveggja, þar sem samfélagslegur tilgangur menntunar, meðal annars til að hlúa að sameiginlegri framtíð náttúru og samfélags á jörðinni, er nokkuð skýr hjá UNESCO. OECDstefnan aftur á móti endurspeglar mun meiri togstreitu milli samfélagslegs og efnahagslegs hlutverks menntunar. Í stefnu OECD, ólíkt stefnu UNESCO, er þögn um þau sem ekki hafa öruggt aðgengi að menntun og búa við brothætt lífsskilyrði.

Um höfund (biography)

Valgerður S. Bjarnadóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

Valgerður S. Bjarnadóttir (vsb@hi.is) er lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar hafa beinst að stefnumótun og skólaþróun, kynjajafnrétti, lýðræðislegu hlutverki háskóla og nemendaáhrifum. Valgerður er með BA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í alþjóðamenntunarfræðum frá Stokkhólmsháskóla og doktorsgráðu frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Að auki hefur hún lokið kennslufræði til kennsluréttinda. Valgerður starfaði sem framhaldsskólakennari um árabil.

Niðurhal

Útgefið

2022-12-13

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar