Netsamskipti milli HÍ og UB: samskipti og samræður í tungumálanámi

Höfundar

  • Pilar Concheiro

Lykilorð:

rafræn samskipti, viðbrögð nemenda, tungumálahæfni

Útdráttur

Í þessari grein verður kynnt námskeiðið SPÆ267G Talþjálfun II: Fjölmiðlar og hversdagsmenning sem kennt er í fjarnámi milli Íslendinga í spænskunámi við Háskóla Íslands og nemenda við Háskólann í Barcelona (sp. Universidad de Barcelona) sem eru að ljúka meistaragráðu sem spænskukennarar. Námskeiðið var kennt á vormisseri 2019. Gerð verður grein fyrir æfingahönnun og námsmati í fjarnámsverkefninu sem byggist á mismunandi samskiptaæfingum í gegnum
fjarfundabúnað, Whatsapp og Flipgrid. Kannað er með eigindlegum  annsóknaraðferðum hvaða áhrif þessar aðferðir höfðu á tungumálafærni nemenda og hver viðbrögð þeirra og viðhorf til verkefnisins voru.

Niðurhal

Útgefið

2020-09-30

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar