„Ég er ekki búin að taka mér frídag í tvö og hálft ár“: Álag og líðan leik- og grunnskólastjóra í COVID-19

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2025/22

Lykilorð:

álag, COVID-19, grunnskólastjórar, leikskólastjórar, líðan

Útdráttur

Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á upplifun leik- og grunnskólastjóra af forystuhlutverki sínu á tímum COVID-19 heimsfaraldursins. Rannsóknin byggir á eigindlegum viðtölum við sex leikskólastjóra og fjóra grunnskólastjóra sem tekin voru á vordögum 2022. Niðurstöðurnar sýna að skólastjórnendur stóðu frammi fyrir fordæmalausum áskorunum og aukinni ábyrgð, þar sem starfssvið þeirra víkkaði verulega. Þeir sinntu nýjum verkefnum eins og sóttvörnum, smitrakningu og umfangsmeiri samskiptum við starfsfólk og foreldra. Á sama tíma fundu þeir fyrir sterkri siðferðislegri skyldu til að hlúa að velferð annarra, oft á kostnað eigin líðanar. Álag jókst verulega og mörk milli vinnu og einkalífs urðu óljós. Mikil tilfinningavinna og skortur á faglegum og kerfisbundnum stuðningi leiddu til andlegrar og líkamlegrar þreytu og í sumum tilvikum til vanmáttar og gremju gagnvart stjórnsýslu og yfirvöldum. Margir lýstu jafnframt áhyggjum af mögulegum langtímaáhrifum á líðan sína og starfsgetu. Þrátt fyrir það kom fram djúpstæð seigla, faglegt stolt og sterk samstaða innan stjórnendateyma. Rannsóknin byggir á kenningum um tilfinningavinnu, um gagnrýna forystu og álags og  bjargráðalíkaninu og dregur fram mikilvægi þess að viðurkenna og styðja félagslega og  tilfinningalega vídd forystu í velferðarstéttum. Hún varpar gagnrýnu ljósi á þá ábyrgð sem skólastjórnendur báru í faraldrinum – án þess að fá viðeigandi umboð, stuðning eða umbun – og undirstrikar nauðsyn skýrari ábyrgðardreifingar og raunhæfs stuðnings í framtíðinni.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Niðurhal

Útgefið

2025-12-04

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)