Tíminn sem ég man eftir: Ávinningur nemenda af þátttöku í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2020.11

Lykilorð:

listgreinar, leiklist, reynslunám, lýðræði, skólasamfélag

Útdráttur

Markmið rannsóknarinnar sem þessi grein byggir á var að stuðla að aukinni þekkingu á listkennslu og skoða hvaða áhrif þátttaka í verkefni eins og Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkurborgar, hefur á líðan og sjálfsmynd ungmenna. Jafnframt var markmiðið að skoða áhrif Skrekks á skólabrag og skólamenningu. Rannsóknin byggir á eigindlegri rannsóknaraðferð. Tekin voru sextán viðtöl, átta við rýnihópa nemenda á unglingastigi og átta viðtöl við kennara og skólastjórnendur, úr fimm skólum. Einnig var fylgst með nemendum á úrslitakvöldi Skrekks í Borgarleikhúsinu. Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að þátttaka í Skrekk hafði jákvæð áhrif á líðan og sjálfsmynd ungmenna, sér í lagi þegar þau fengu tækifæri til að vinna út frá eigin reynslu í námi og lýðræðislegum gildum. Einnig leiddi rannsóknin í ljós að þátttaka í Skrekk hefði góð áhrif á skólasamfélagið þar sem mikil liðsheild skapaðist í kringum keppnina. Nemendur kynntust þvert á árganga og í ljós kom að þeir litu á þátttöku sína sem afar dýrmætan tíma þar sem þeir söfnuðu jákvæðum minningum. Þeir sögðu það hafa aukið stolt þeirra að taka þátt, jafnt þátttakenda sem áhorfenda þátttökuskóla, og þeirra nemenda sem fylgdust með úr fjarlægð. Þannig urðu þátttakendur og áhorfendur hluti af Skrekkssamfélaginu þar sem félagsleg tengsl mynduðust auk menningar- og samfélagslegra þátta sem höfðu áhrif á skólasamfélagið í heild. Á þann hátt urðu listirnar þáttur í reynslunámi nemenda.

Um höfund (biographies)

  • Jóna Guðrún Jónsdóttir
    Jóna Guðrún Jónsdóttir (jonag@hi.is) er aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk kennsluréttindanámi frá HÍ árið 2005 og meistaragráðu í kennslu listgreina 2020. Jóna Guðrún hefur um 20 ára kennslureynslu á öllum skólastigum. Hún hefur sérhæft sig í leiklistarkennslu og áhrifum leiklistar í tengslum við nám barna. Rannsóknarsvið hennar tengist meðal annars listkennslu, fjölmenningu og leiklist.
  • Rannveig Björk Þorkelsdóttir
    Rannveig Björk Þorkelsdóttir (rbth@hi.is) er dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk B.Ed.-prófi frá Háskóla Íslands árið 2003, M.A.-prófi í uppeldis- og menntunarfræðum frá sama skóla árið 2009 og M.A. prófi í hagnýtri menningarmiðlun frá sagnfræði- og heimspekideild árið 2012. Hún lauk doktorsprófi frá Kennaradeild Norska tækni- og vísindaháskólans, (NTNU) í Þrándheimi 2016 þar sem hún skrifaði um innleiðingu leiklistar í grunnskóla á Íslandi. Rannsóknarsvið Rannveigar tengist meðal annars listkennslu og leiklist.

Niðurhal

Útgefið

2020-12-31

Tölublað

Kafli

Ritstýrðar greinar