Fullgildi leikskólabarna í fjölbreyttum barnahópi: Sýn og reynsla foreldra

Höfundar

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2022.31.3

Lykilorð:

fullgildi, foreldrar af erlendum uppruna, starfshættir í leikskólum, fjölbreyttur barnahópur

Útdráttur

Markmið rannsóknarinnar var að leita eftir sjónarmiðum foreldra um samstarf, starfshætti, samskipti og félagslega þætti leikskólastarfs í leikskóla barna þeirra. Börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn geta staðið höllum fæti þegar kemur að félagslegum þáttum starfsins. Tilgangurinn er að fá innsýn í sjónarmið foreldra um fullgildi barna þeirra í leikskólastarfi og varpa þannig ljósi á mikilvægi þess að koma til móts við fjölbreytta barnahópa og sýna hvernig börn með önnur móðurmál og aðra heimamenningu geta auðgað og bætt leikskólastarfið. Þátttakendur voru 300 foreldrar leikskólabarna sem svöruðu rafrænum spurningalista. Tæplega 90% þátttakenda voru fædd á Íslandi. Flestir foreldrar töldu börn sín hafa sterka stöðu í jafningjahóp, þau ættu vini, væru hluti leikskólasamfélagsins og hlustað væri á þau. Foreldrar af erlendum uppruna höfðu frekar áhyggjur af því að börn þeirra væru útilokuð vegna menningar eða tungumáls og þeir óskuðu eftir betri stuðningi við börnin til fullgildis. Þessir foreldrar voru ólíklegri en aðrir til að finnast þeir vera með í ráðum um starfshætti leikskólans og treystu sér síður til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Um höfund (biographies)

Jóhanna Einarsdóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

Jóhanna Einarsdóttir (joein@hi.is) er prófessor í menntunarfræðum ungra barna við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún er einnig heiðursdoktor við Háskólann í Oulu í Finnlandi. Hún hlaut viðurkenningu fyrir framlag sitt til rannsókna á menntun ungra barna frá University of Illinois árið 2018. Hún hefur stundað rannsóknir í leik- og grunnskólum um árabil og ritað fjölda fræðigreina og bóka um efnið. Sérsvið hennar eru rannsóknir með börnum, samfella í námi barna og starfendarannsóknir. Hún er þátttakandi í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum, bæði sem rannsakandi og ráðgjafi. Jóhanna situr í stjórn European Early Childhood Education Research Association

Eyrún María Rúnarsdóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

Eyrún María Rúnarsdóttir (emr@hi.is) er lektor í uppeldis- og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar beinast að börnum og unglingum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, líðan þeirra, vinatengslum og félagslegum stuðningi frá vinum og foreldrum. Eyrún lauk BA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræði árið 1996 og meistaragráðu í sömu grein árið 2002 frá Háskóla Íslands. Þá lauk hún doktorsgráðu frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands árið 2019.

Niðurhal

Útgefið

2022-08-04

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar