Þegar enginn er á móti er erfitt að vega salt: Reynsla nemenda af erlendum uppruna af íslenskum grunnskóla

Höfundar

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2021.30.3

Lykilorð:

nemendur af erlendum uppruna, fjölmenning, félagsleg og námsleg hlutdeild, fjöltyngi, móðurmál

Útdráttur

Frá síðustu aldamótum hefur íslenskt samfélag tekið hröðum breytingum og hefur hlutfall íbúa sem teljast innflytjendur aukist úr 2,6% árið 2000 í 15% árið 2020 (Hagstofa Íslands, e.d.). Markmið rannsóknarinnar sem hér er greint frá var að öðlast skilning á upplifun, samskiptum og félagslegri þátttöku nemenda af erlendum uppruna í íslenskum grunnskólum með það að leiðarljósi að koma betur til móts við náms- og félagslegar þarfir þessa nemendahóps. Tekin voru viðtöl við átta grunnskólanemendur af erlendum uppruna í 6., 7., 9. og 10. bekk í einum skóla á landsbyggðinni. Leitast var við að skilja hvernig skólinn mætti þörfum þeirra og á hvaða hátt hann styddi nemendur í daglegu lífi ásamt því að skoða hvernig tengslum þeirra við aðra nemendur skólans af íslenskum uppruna væri háttað. Fjallað verður um niðurstöður rannsóknarinnar út frá eftirfarandi þemum: móðurmál og mikilvægi þess; að upplifa sig öðruvísi; stuðningur í námi; samskipti og félagsleg þátttaka. Lærdómur rannsóknarinnar fyrir skólastarf er meðal annars sá að til að þessi nemendahópur fái betur notið sín og styrkleika sinna er mikilvægt að skólinn hafi frumkvæði að því að skilja og greina þarfir nemendanna.

Um höfund (biographies)

Hermína Gunnþórsdóttir

Hermína Gunnþórsdóttir (hermina@unak.is) er prófessor við kennaradeild Háskólans á Akureyri og Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún er með BA-próf í íslensku og uppeldis- og kennslufræði frá Háskóla Íslands, meistarapróf frá Kennaraháskóla Íslands (2003) og doktorspróf frá Háskóla Íslands (2014). Hún hefur starfað við leik-, grunn- og framhaldsskóla. Helstu viðfangsefni hennar í kennslu og rannsóknum eru skóli og nám án aðgreiningar, fjölmenning og nám, félagslegt réttlæti í menntun, fötlunarfræði og menntastefna og framkvæmd hennar.

Lilja Rós Aradóttir

Lilja Rós Aradóttir (liljaros92@gmail.com) er deildarstjóri í Leikskóla Fjallabyggðar. Hún lauk BA-prófi í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands (2018) og M.Ed.-prófi í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri (2020). Rannsóknin sem þessi grein byggist á var liður í meistaranámi hennar. Áhugi hennar beinist einkum að starfi með börnum af erlendum uppruna, málörvun og börnum sem þurfa stuðning í námi.

Niðurhal

Útgefið

2021-07-02

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar