„Í skini kertaljóss“: Juan José Plans og hryllingur á öldum ljósvakans
Lykilorð:
uan José Plans, spænsk öndvegisverk, hryllingssögur, fantasía, útvarpsleikhúsÚtdráttur
Skáldverk frá Spáni hafa venjulega verið talin raunsæ í eðli sínu. Nýrri höfundaverk sýna hversu ónákvæm þessi hefðbundna hugmynd er og nú fer fram endurskoðun á öndvegisverkum liðinna alda. Mikil gróska er í akademískum rannsóknum á þætti fantasíunnar í spænskum bókmenntum og hafa þær stuðlað að endurreisn lykilhöfunda í þessari jaðarbókmenntagrein. Þessi grein er hluti af víðtækara rannsóknarverkefni sem miðar að sams konar endurtúlkun, með áherslu á einn af þeim höfundum sem hafa átt mikinn þátt í að útbreiða fantasíubókmenntir á Spáni: Juan José Plans (1943–2014). Með því að rannsaka útvarpsþætti hans, Sobrenatural og Historias, hyggjumst við sýna fram á framlag hans til endurvakningar á þessum hluta spænskrar samtímamenningar.
Lykilorð: Juan José Plans, spænsk öndvegisverk, hryllingssögur, fantasía, útvarpsleikhús