Um Jidanan Luangphiansamut og söguna Heimsk eiginkona ungs rithöfundar

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.33112/millimala.16.2.7

Útdráttur

Jidanan Luangphiansamut (f. 1992) stundaði háskólanám í Chiangmai og Bangkok og lauk BA- prófi í rússnesku. Hún hefur skrifað frá unga aldri og fór að senda sögur í tímarit og samkeppnir á háskólaárum sínum. Jidanan hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín, þar á meðal SEAWrite-verðlaunin árið 2017 fyrir smásagnasafnið Singto nok khok (Ljónið utan búrsins), sem einkenndist af dystópískum áherslum. SEAWrite eru helstu bókmenntaverðlaun landsins og eru veitt árlega til skiptis fyrir skáldsögur, smásögur og ljóðabækur. Af um 50 verðlaunahöfum til þessa er hún ein af einungis sex skáldkonum sem hefur hlotnast þessi heiður. Þegar hún hlaut verðlaunin var hún 25 ára gömul, yngst skáldanna sem hafa fengið þessi verðlaun. Sagan „Heimsk eiginkona ungs rithöfundar“´ er úr safninu At mai mo hak pro bang (Sumt er kannski ekki við hæfi heldur er það viðkvæmt) frá 2022. Árið 2022 kom líka út skáldsagan Si sud-thai khong klang-khuen (Síðustu litir næturinnar), tilraunakennd bók um ástarsamband tveggja karla. Báðar nýju bækurnar hafa vakið verðskuldaða athygli. Höfundurinn hefur auk þess samið unglingabækur. Nýjasta bók hennar er smásagnasafnið Mai chai manut lae tua ton eun eun (Hvorki manneskja né annars konar lífvera) sem kom út árið 2023.

Sagan „Heimsk eiginkona ungs rithöfundar“ er einstök saga og sem slík hvorki dæmigerð fyrir höfundinn né fyrir tailenskan skáldskap. Höfundurinn fer á kostum í lýsingum á karllægum heimi tailenskra rithöfunda og tailensks samfélags en sagan hefði þó í meginatriðum líka getað komið frá franskri, íslenskri eða kannski mexíkóskri skáldkonu, reyndar hvaðan sem er úr heiminum. Eitt af markmiðum þýðingarinnar var að vinna gegn hugmyndum um að tailenskur skáldskapur og tailensk menning séu við einhverja eina og fyrirsjáanlega fjöl felld

Um höfund (biography)

  • Hjörleifur Rafn Jónsson, Arizona State University - School of Human Evolution and Social Change

    Hjörleifur Rafn Jónsson (f. 1961) lauk doktorsprófi frá Cornellháskóla og er prófessor í mannfræði við Ríkisháskóla Arizona (Arizona State University) í Bandaríkjunum.

Niðurhal

Útgefið

2025-03-31

Tölublað

Kafli

Þýðingar