Kæra stærðfræði

Um bókina Dear Math

Höfundar

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2023.32.6

Útdráttur

Bókin Dear Math: Why Kids Hate Math and What Teachers Can Do About It er byggð á bréfum sem nemendur skrifuðu til stærðfræði. Út frá bréfunum og 15 ára reynslu sinni sem kennari segir Sarah Strong áhugaverða sögu með fræðilegri skírskotun. Hún gefur hagnýt ráð til kennara og fagfólks á öllum skólastigum um hvernig byggja megi upp jákvæð viðhorf nemenda til stærðfræði. Bókina skrifar Sarah í samstarfi við fyrrum nemanda sinn í fjögur ár, Gigi Butterfield

Um höfund (biography)

Jóhann Örn Sigurjónsson, Háskólinn á Akureyri - Kennaradeild

Jóhann Örn Sigurjónsson (johannorn@unak.is) er nýdoktor í stærðfræðimenntun við Háskólann á Akureyri. Hann lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands árið 2023 og hefur þaðan einnig menntun á sviði faggreinakennslu og tölvunarfræði. Rannsóknarsvið hans beinist að þróun stærðfræðikennslu, notkun námsefnis og gæðaþáttum í kennslu á borð við hugræna virkjun og stuðning við nám

Niðurhal

Útgefið

2024-01-08