Mótun viðhorfa kennaranema til stærðfræði og tengsl við árangur

Höfundar

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2021.30.13

Lykilorð:

viðhorf, hugarfar, sýn á stærðfræði, kennaranemar

Útdráttur

Erlendar rannsóknir hafa sýnt að algengt er að kennaranemar um allan heim hafi neikvæðar tilfinningar gagnvart stærðfræði og neikvæða mynd af sjálfum sér sem stærðfræðiiðkendum Í þessari rannsókn er sjónum beint að viðhorfum íslenskra kennaranema til stærðfræði og hvernig þau viðhorf mótast og þróast yfir tíma. 76 nemendur á öðru ári í kennaranámi skrifuðu um tilfinningar sínar og reynslu sem nemendur í stærðfræði allt frá grunnskóla til háskóla. Nemendur voru meðal annars beðnir að segja frá bæði bestu og verstu minningum úr stærðfræðinámi sínu og setja fram graf sem lýsti tilfinningum þeirra til fagsins gegnum lífið. Reynslan sem sögurnar lýstu var margvísleg, allt frá því að aldrei hafði sést til sólar í stærðfræðináminu til þess, sem sjaldgæfara var, að stærðfræðinámið hafði gengið vel frá upphafi. Allmennt sýndu niðurstöður þó að það sem einkenndi viðhorf margra kennaranema til stærðfræði var neikvæð tilfinningaleg afstaða, festuhugarfar og tækniskilningur.

Um höfund (biographies)

Ingólfur Gíslason, Háskóli Íslands

Ingólfur Gíslason (ingolfug@hi.is) er aðjunkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann lauk B.S.-gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands 1998 og M.Paed.-gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands 2006. Rannsóknaráhugi Ingólfs beinist einkum að orðræðu og samskiptum í stærðfræðinámi og -kennslu og möguleikum stærðfræðiforrita fyrir merkingarbært stærðfræðinám.

Berglind Gísladóttir, Háskóli Íslands

Berglind Gísladóttir (berglindg@hi.is) er lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Hún lauk B.Ed.-gráðu frá Kennaraháskóla Íslands 2002, M.Ed.-gráðu í stærðfræðimenntun
frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007 og doktorsprófi í stærðfræðimenntun frá Columbiaháskóla
í New York árið 2013. Rannsóknaráhugi Berglindar beinist að námslegum og
félagslegum þáttum sem hafa áhrif á námsárangur nemenda. Einnig beinist áhuginn að
fagþekkingu kennara og þróun skólastarfs.

Niðurhal

Útgefið

2022-01-07

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar