Þegar eldurinn slokknar
um ævintýri, miðlun og möguleika
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.33112/millimala.16.1.4Lykilorð:
þjóðsögur, ævintýri, gagnagrunnur, Ævintýragrunnurinn, ATU 480Útdráttur
Í greininni er fjallað um Ævintýragrunninn – gagnagrunn sem var settur saman í þeim tilgangi að auðvelda rannsóknir á íslenskum ævintýrum og samanburð á þeim. Grunnurinn var upphaflega kennsluverkefni og aðgengilegur í tilraunahefti en að lokum var hann sameinaður sagnagrunninum (Sagnagrunnur.com) árið 2016. Sagnagrunnurinn, og Ævintýragrunnurinn þar með, voru svo fluttir yfir til Ísmús.is árið 2022 en við það breyttist viðmót þeirra og leitarmöguleikum fjölgaði (https://www.ismus.is/tjodfraedi/ aevintyri/). Í greininni eru notkunarmöguleikar grunnsins kynntir og sýnt er fram á nytsemi hans við rannsóknir á íslenskum ævintýrum og dæmi tekið, þar sem nánar er litið á ævintýragerð nr. ATU 480 (The Kind and the Unkind Girls) sem naut umtalsverðra vinsælda á Íslandi. Ævintýrið segir frá dóttur karls og kerlingar sem er send eftir eldi. Hún kemur að lokum að helli vættar þar sem hún sýnir mannkosti sína og uppsker ríkulega í sögulok. Að lokum eru íslensk tilbrigði sögunnar borin saman við sögu frá síðmiðöldum, Illuga sögu Gríðarfóstra, sem fylgir sama grunnmynstri og ævintýragerðin.