Xiang-ji-hof (hof vaxandi ilms) sótt heim
Lykilorð:
Xiang-ji-hof, Wang WeiÚtdráttur
Ég veit ekki hvar hofið er en klifið hef ég ófáa skýjum krýnda tinda.
Ævaforn tré, hér er enginn á ferð, og í djúpinu óma bjöllur.
Lækur gjálfrar við eggjagrjót undir húmgráum skuggum furutrjáa.
Í rökkrinu við hylinn, í hljóðri setu, vinn ég bug á eiturnöðrum.