Að byrja í leikskóla

Mikilvægi góðrar aðlögunar

Höfundar

  • Sigríður Síta Pétursdóttir

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2024.33.11

Lykilorð:

aðlögun, yngstu börnin, umhyggja, öryggi, tengsl

Útdráttur

Grein þessi fjallar um mikilvægi góðrar aðlögunar og er byggð á áratuga reynslu höfundar, athugunum og uppeldisfræðilegum skráningum um aðlögun með þátttöku foreldra í þremur norskum leikskólum frá 2011 til 2022. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi aðlögunar við upphaf leikskólagöngu og koma á framfæri ákveðinni leið aðlögunar sem hægt er að fara til að skapa örugg og traust samskipti milli tveggja heima barnsins, heimilis og leikskóla. Fjallað er um mikilvægi þess að byggja upp traust og öryggi strax frá fyrsta degi í aðlögun, um hlutverk umönnunaraðila og áhrif þeirra á félags- og tilfinningaþroska barnanna. Einnig er fjallað um lykilhugtök í aðlögun og þau tengd fræðilega við reynslu höfundar. Sú leið í aðlögun sem hér er lýst, þ.e. að foreldrar eru þátttakendur, er mikilvægur liður í að leggja grunn að góðum og traustum samskiptum milli heimilis og leikskóla og stuðla að vellíðan og öryggi barns við upphaf leikskólagöngu.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Um höfund (biography)

  • Sigríður Síta Pétursdóttir

    Sigríður Síta Pétursdóttir (sita.peturs@gmail.com) er leikskólakennari, með M.Ed.-gráðu menntunarfræðum frá Háskóla Íslands 2008 og pedagogista frá Reggio Institutet Stokkhólmi 2009. Hún er sjálfstætt starfandi fyrirlesari og EQ-þerapisti. Áherslur hennar í starfi sem leikskólakennari hafa verið umhyggja, tengslamyndun og tilfinningagreind. Hún hefur lagt áherslu á að starfa í rólegum takti (e. slow pedagog).

Niðurhal

Útgefið

2024-10-30

Tölublað

Kafli

Ritstýrðar greinar