Athuganir og skráningar í leikskólanum

Preschool staff experience

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2024.33.4

Lykilorð:

leikskóli, athuganir, skráningar, starfshættir leikskóla, starfsfólk leikskóla

Útdráttur

Athuganir og skráningar eru hugtök sem eru notuð yfir aðferðir við að safna markvisst gögnum í leikskólastarfi. Um er að ræða leiðir til að afla upplýsinga um nám, þroska og líðan barna svo dæmi séu tekin. Sumar leiðir við athuganir og skráningar eru staðlaðar en aðrar opnari, allt eftir því hvaða hugmyndafræði liggur að baki og að hvaða markmiði er stefnt. Í rannsókninni sem hér er kynnt var lögð spurningakönnun fyrir starfsfólk leikskóla til að fá skýrari sýn á það hvaða leiðir eru notaðar við skráningar og athuganir og hvernig þær eru nýttar í starfinu. Niðurstöður sýna að algengustu aðferðirnar eru atferlisathuganir og uppeldisfræðileg skráning. Staðlaðar leiðir þykja fljótlegri og gefa góða raun og starfsfólk finnur fyrir þrýstingi á að nota þær frekar en opnari aðferðir. Einnig kemur skýrt fram að margt í leikskólastarfinu virðist hindra að athuganir og skráningar fari fram, svo sem mannekla og álag, en almennt segist starfsfólk nota athuganir og skráningar töluvert til að bæta nám og líðan barna

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Um höfund (biographies)

  • Helena Sjørup Eiríksdóttir

    Helena Sjørup Eiríksdóttir (helenaeiriks@simnet.is) er leikskólakennari í Heilsuleikskólanum Krógabóli á Akureyri. Hún lauk B.Ed.-prófi í kennarafræðum árið 2018 og M.Ed.- prófi í menntunarfræðum með áherslu á leikskólastig tveimur árum síðar frá Háskólanum á Akureyri. Helena hefur starfað sem leiðbeinandi, nemi, deildarstjóri og leikskólasérkennari frá árinu 2010. Rannsóknarefni meistaraverkefnis hennar sneri að skráningum og athugunum í leikskólum. Áhugasvið hennar er að efla færni og þroska ungra barna í námi með mismunandi leiðum, sveigjanleika og hugmyndaauðgi í gegnum listir og sköpun.

  • Anna Elísa Hreiðarsdóttir, Háskólinn á Akureyri - Hug- og félagsvísindasvið

    Anna Elísa Hreiðarsdóttir (annaelisa@unak.is) er lektor við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Rannsóknir hennar og þróunarverkefni snúa meðal annars að foreldrasamstarfi, jafnrétti, starfi með elstu börnum leikskólans og tölvum og tækni í leikskólastarfi þar sem skapandi starf og leikur er í fyrirrúmi. Anna Elísa fékk þriðju verðlaun (eLearning award) fyrir framúrskarandi upplýsinga- og samskiptaverkefni með ungum börnum árið 2003 á vegum Evrópska skólanetsins

Niðurhal

Útgefið

2024-10-30