„Þetta er bara hoppa út í djúpu laugina og gera sitt besta“

Upplifun og líðan grunnskólakennara í upphafi starfs

Höfundar

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2023.32.4

Útdráttur

Vísbendingar eru um að vanlíðan kennara í starfi sé að aukast og eru helstar ástæður taldar vera aukið álag í starfi og skortur á stuðningi sem aftur tengist líkum á því að nýliðar hætti störfum. Rannsóknin er um upplifun og líðan grunnskólakennara í upphafi starfs. Tekin voru eigindleg viðtöl við níu kennara sem allir eru starfandi grunnskólakennarar. Leitast var við að varpa ljósi á reynslu kennaranna og líðan í sambandi við móttökuferli í upphafi starfs og samskipti og stuðning stjórnenda og samstarfsfólks. Niðurstöður sýna að nýliðum finnst kennarastarfið vera fjölbreytt en jafnframt krefjandi. Fram komu vísbendingar um að auka þyrfti vægi samskipta með áherslu á jákvæð og uppbyggileg samskipti ásamt því að auka stuðning stjórnenda. Af niðurstöðunum má draga þá ályktun að styrkja þurfi móttökuferli nýrra kennara og gera ráðstafanir til að minnka álag og óöryggi í upphafi kennsluferils og að liður í því sé að styðja sjálfstraust nýliða og vellíðan í starfi. Niðurstöður rannsóknarinnar geta verið framlag til þekkingar á þáttum sem styrkja þarf til að auka starfsánægju og vellíðan kennara við upphaf starfs og þar með líkur á að þeir haldist í starfi.

Um höfund (biographies)

Álfheiður Tryggvadóttir

Álfheiður Tryggvadóttir (alfheidur@stekkjaskoli.is) er með meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, hefur lokið námi í kennslufræðum til kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri og BS-prófi í ferðamála- og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands. Álfheiður hefur langa starfsreynslu í skólaumhverfinu, þar af tíu ára kennslureynslu í grunnskóla, starfaði sem kennsluráðgjafi í grunnskóla í tvö ár og gegnir nú starfi deildarstjóra í grunnskóla. Rannsókn Álfheiðar snýr að móttöku nýrra grunnskólakennara og líðan þeirra í upphafi starfs.

Sigrún Gunnarsdóttir, Háskóli Íslands - Viðskiptafræðideild

Sigrún Gunnarsdóttir (sigrungu@hi.is) er hjúkrunarfræðingur og lauk MSc-prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ með áherslu á vellíðan í starfi og PhD-prófi frá London School of Hygiene & Tropical Medicine með áherslu á lýðheilsu, forystu, heilbrigt starfsumhverfi og vellíðan í starfi. Sigrún hefur starfað innan heilbrigðisþjónustunnar, var um árabil ráðgjafi hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra 2018. Sigrún er prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og formaður Þekkingarseturs um þjónandi forystu.

Niðurhal

Útgefið

2024-01-08