Félagsuppeldisfræði: Félagsfræði og starf á vettvangi

Höfundar

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2020.29.7

Lykilorð:

félagsuppeldisfræði, félagsfræði, félagslegt samfélag/viðskiptasamfélag, menningarleg leysing, vélræn/lífræn samheldni

Útdráttur

Félagsuppeldisfræði og félagsfræði spruttu úr sama jarðvegi. Í fræðigreininni félagsfræði reyndu menn að skilja örar samfélagsbreytingar og félagsfræðingar sáu að nútímavæðing skapaði viðkvæma hópa sem þurftu sérstakan stuðning. Á sama tíma varð félagsuppeldisfræðin til sem samheiti yfir margvíslegt menntunarstarf, sem leitast við að efla samfélagsþátttöku þeirra sem standa höllum fæti.

Samspil félagsfræði og félagsuppeldisfræði hefur oft verið tilviljanakennt en á síðustu áratugum hafa margir félagsuppeldisfræðingar leitast við að nota félagsfræðilegar nálganir sem eru raktar til upphafsmanna fræðigreinarinnar, svo sem Karls Marx, Ferdinands Tönnies, Emiles Durkheim og Georges Herberts Mead. Í þessari grein eru nokkur nýleg verk félagsuppeldisfræðinga á Norðurlöndum og í Þýskalandi skoðuð í ljósi kenninga nokkurra helstu félagsfræðinga á 20. öld.

Það einkennir þessi verk að höfundarnir styðjast, hver fyrir sig, við einstaka félagsfræðinga. Í greininni er lýst sögulegri þróun sem ætti að hvetja norræna félagsuppeldisfræðinga (og starfsfélaga þeirra um allan heim) til að beita fleiri nálgunum í rannsóknum og starfi og til að skoða viðfangsefni sitt frá fleiri sjónarhornum.

Um höfund (biographies)

Gestur Guðmundsson

Gestur Guðmundsson (gesturgu@hi.is) lauk BA-prófi í félagsfræði við Háskóla Íslands 1976, meistaraprófi í félagsfræði við Kaupmannahafnarháskóla 1981 og doktorsprófi frá sama skóla 1991. Gestur hefur unnið við alþjóðleg rannsóknarverkefni um lífsskilyrði og menningarsköpun ungmenna sem ljúka ekki framhaldsnámi. Hann hefur verið virkur í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi, m.a. sem aðalritstjóri tímaritsins Young: Nordic Journal of Youth Research um langt skeið, og hefur veitt ráðgjöf, bæði íslenskum, dönskum og evrópskum stjórnvöldum. Gestur er prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Árni Guðmundsson

Árni Guðmundsson (arni@hi.is) er aðjúnkt og doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Árni er menntaður tómstunda- og félagsmálafræðingur frá Fritidsledarskolan í Gautaborg 1982. Hann er með Dipl.Ed.-gráðu (2003) og M.Ed.-gráðu (2006) í uppeldis og menntunarfræðum frá Kennaraháskóla Íslands. Árni hefur langa reynslu af starfi á vettvangi æskulýðsmála, sérstaklega félagsmiðstöðva, og hefur gegnt þar fjölda ábyrgðarog trúnaðarstarfa.

Niðurhal

Útgefið

2020-12-16

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)