Ögunaraðferðir íslenskra foreldra
Lykilorð:
ögunaraðferðir, uppbyggilegar ögunaraðferðir, tilfinningalegt ofbeldi, andlegt ofbeldi, líkamlegar refsingar, líkamlegt ofbeldiÚtdráttur
Í þessari rannsókn voru ögunaraðferðir foreldra kannaðar. Spurningalisti var sendur til foreldra 6–17 ára barna og þeir spurðir um ögunaraðferðir. Ögunaraðferðirnar sem spurt var um falla undir a) uppbyggilegar uppeldisaðferðir, b) sálræna valdbeitingu og c) þrjú stig líkamlegrar valdbeitingar: væga, alvarlega og mjög alvarlega. Foreldrar sem svöruðu listanum (N=617) voru á aldrinum 26–76 ára. Niðurstöður leiddu í ljós að allflestir sögðust beita uppbyggilegum og fremur lýðræðislegum ögunaraðferðum. Þó sögðust 65% hafa notað sálræna valdbeitingu af einhverju tagi sem ögunaraðferð og 19,4% sögðust hafa notað líkamlega valdbeitingu við ögun barna sinna síðastliðið ár. Yngri foreldrar beittu marktækt oftar slíkum aðferðum en eldri foreldrar. Breyturnar kyn og menntun höfðu ekki marktæk áhrif á ögunaraðferðir. Þar sem svarhlutfall var lágt (24%) gefa þessar niðurstöður ekki tilefni til að alhæfa um þýðið, en benda þó til þess að töluvert fleiri foreldrar beiti líkamlegum refsingum en opinberar tölur gefa til kynna.Niðurhal
Útgefið
2016-06-14
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar