Raddir skilnaðarbarna: Um jafna búsetu hjá foreldrum eftir skilnað
Lykilorð:
jöfn búseta, skilnaður, foreldrasamstarf, velferð barna, skilnaðarráðgjöf, fjölskyldulöggjöfÚtdráttur
Í greininni er kynnt rannsókn á reynslu uppkominna skilnaðarbarna af jafnri búsetu hjá foreldrum eftir skilnað. Hún er framhald fyrri rannsókna höfunda um forsjá, búsetu, foreldrasamstarf og kynslóðasamskipti foreldra og ömmu/afa í 16 fjölskyldum. Rannsóknin er tvískipt: Megindlegur hluti um umfang og sýn 18–59 ára einstaklinga á landsvísu með reynslu af skilnaði foreldra og jafnri búsetu hjá þeim eftir skilnaðinn, og eigindlegur hluti með einstaklingsviðtölum við 16 skilnaðarbörn um uppvaxtarreynslu þeirra af jafnri búsetu. Niðurstöður benda til almennt jákvæðrar reynslu af jafnri búsetu. Jafnframt komu fram skýr gagnrýnin sjónarmið varðandi öryggiskennd barnanna. Það átti einkum við þegar foreldrar velja fyrirkomulagið út frá eigin hagsmunum og án tillits til viðurkenndra forsendna sem þurfa að vera fyrir hendi ef vel á að takast til fyrir börnin. Í lokin eru niðurstöður ræddar og dregnar af þeim ályktanir um þjónustuþörf og lagabreytingar.