Útópía í ójöfnum heimi: Hinseginleiki í Star Trek

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.33112/isthjod.16.2.4

Lykilorð:

Dægurmenning, Mannfræði, Hinsegin fræði, Star Trek

Útdráttur

Star Trek sjónvarpsþættirnir hafa í meira en hálfa öld tekist á við málefni sem viðkvæmt hefur verið að fjalla um í sjónvarpi (Heath og Carlisle, 2020). Star Trek heimurinn, settur fram í geimsápuóperustíl í fjarlægri framtíð, hefur frá upphafi fagnað fjölbreytileika mannlegrar tilveru og sýnt jákvæða mynd af framtíð mannkynsins (Kozinets, 2001; Mittermeier og Spychala, 2020). Í greininni verður rýnt í ólíkar birtingarmyndir hinseginleikans í þáttunum í gegnum tíðina og upplifanir hinsegin, trans og kynsegin áhorfenda af þeim. Greinin byggir á etnógrafískri eigindlegri rannsókn en gagnaöflun fólst í viðtölum við íslenska hinsegin, trans og kynsegin Star Trek aðdáendur, þátttökuathugunum meðal þeirra og fjölmiðlagreiningu á skrifum um Star Trek og aðdáendur þáttanna í íslenskum miðlum. Í greininni verður aðaláhersla lögð á gögn úr viðtölunum. Niðurstöðurnar sýna hvernig Star Trek aðdáendurnir upplifa stemninguna sem myndast á ráðstefnum og öðrum hópsamkomum þeirra sem merki um virðingu fyrir fjölbreytileika og öruggt rými fyrir hinsegin fólk. Einnig sýna niðurstöðurnar hvernig þættirnir veita viðmælendunum von um jafnari framtíð með umræðu um samfélagsleg mál og jákvæðum birtingarmyndum ýmissa hópa eins og hinsegin, trans og kynsegin fólks sem kemur fram í þáttunum á ólíka vegu á ólíkum tímum.

Niðurhal

Útgefið

23.12.2025

Svipaðar greinar

1-10 af 26

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.