„Römm er sú taug“: Íslenskir læknar á þverþjóðlegum atvinnumarkaði
Lykilorð:
þverþjóðleiki, hreyfanleiki, fólksflutningar, atgervishringrás, læknarÚtdráttur
Læknar brugðust við áhrifum efnahagshrunsins 2008 með því að flytja af landi brott í miklum mæli. Á árunum 2009–2014 fluttu 330 læknar frá Íslandi á meðan einungis 140 læknar fluttu heim á sama tíma. Í kjölfarið fækkaði læknum meira en áður hefur sést hérlendis sé miðað við íbúa á hvern lækni. Þetta leiddi til erfiðleika innan heilbrigðiskerfisins. Í greininni eru áhrif vinnumarkaðarins á heimkomu íslenskra lækna erlendis frá skoðuð, sér í lagi hvernig þeir atvinnumöguleikar, sem í boði eru hvetja eða letja lækna til þess að flytja aftur heim. Þegar ástæður brottflutnings og heimkomu eru skoðaðar kemur í ljós að faglegur metnaður skiptir álíka miklu máli og laun til að útskýra hreyfanleika lækna. Meginvandamálið er fyrst og fremst tengt vinnuumhverfinu og þá sérstaklega sjálfu heilbrigðiskerfinu og uppbyggingu þess. Rannsóknin byggir á djúpviðtölum við 20 lækna sem hafa starfað erlendis en flutt aftur heim, 10 lækna sem starfa erlendis og sjá ekki fyrir sér að flytja heim og 15 aðila sem starfa í stjórnsýslu innan heilbrigðiskerfisins.
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi

Greinar í tímaritnu eru gefnar út undir leyfinu(Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 4.0 International License).