Siðareglur

Siðareglur tímaritsins byggja á leiðbeiningum um siðareglur í tímaritsúgáfu hjá COPE (Committee on Publication Ethics). Einnig er stuðst við siðareglur birtinga hjá Elsevier útgáfunni og Tímariti um uppeldi og menntun (TUM).

Allir sem koma að útgáfuferli tímaritsins, þar á meðal ritstjórar, höfundar, ritrýnar og útgefendur, verða að fylgja þessum leiðbeiningum.

Ábyrgð höfunda

  • Uppruni og ritstuldur: Höfundar skila inn eigin óútgefnum verkum. Ef höfundar nýta aðstoð gervigreindarverkfæra við ritun greina þurfa upplýsingar um þau að koma fram. Endanleg ábyrgð á grein liggur ávallt hjá höfundum.
  • Höfundar greina: Aðeins þeir sem lagt hafa verulega af mörkum til greinar ættu að vera skráðir sem meðhöfundar. Breytingar á höfundarrétti eftir skil krefjast skriflegs samþykkis allra höfunda.
  • Gögn: Höfundar bera ábyrgð á nákvæmni og áreiðanleika gagna.
  • Hagsmunaárekstrar: Höfundar upplýsa um mögulega hagsmunaárekstra sem kunna að liggja að baki rannsóknum. Fjármögnun styrktaraðila kemur fram þar sem við á.
  • Persónuvernd: Höfundar bera ábyrgð á því að farið sé eftir íslenskum persónuverndarlögum til að mynda í tengslum við meðferð og öflun gagna.
  • Leiðréttingar: Ef höfundar verða varir við verulegar villur í útgefinni grein þurfa þeir að tilkynna um það sem fyrst. Fylgt er leiðbeiningum frá COPE varðandi leiðréttingar á efni.

Ábyrgð ritstjóra

  • Sanngjarnt rýningarferli: Ritstjórar taka ákvörðun um ritrýni út frá sérfræðiþekkingu ritrýna og án mismununar.
  • Trúnaður: Ritstjórar halda trúnaði við höfunda og ritrýna.
  • Hagsmunaárekstrar: Ritstjórar upplýsa um mögulega hagsmunaárekstra við ritstjórn greina.
  • Sjálfstæði ritstjórnar: Ákvarðanir ritstjórnar eru teknar óháð hagsmunum stofnana, stjórnmála eða viðskipta.

Ábyrgð ritrýna

  • Trúnaður: Ritrýnar eru bundnir trúnaði og handrit í ritrýni er trúnaðarmál.
  • Hlutlægni: Yfirferð skal fara fram á hlutlausan hátt með uppbyggilegum athugasemdum.
  • Hagsmunaárekstrar: Ritrýnum ber að upplýsa ritstjóra ef um hagsmunaárekstra er að ræða.
  • Tímasetningar: Yfirferð efnis skal vera lokið innan tilskilins tíma. Tilkynna skal tafarlaust um tafir.

Ábyrgð útgefanda

  • Tryggir sjálfstæði ritstjórnar, styður við ritstjórn og tryggir vönduð vinnubrögð.
  • Kannar ásakanir um misferli samkvæmt leiðbeiningum COPE.
  • Tryggir langtímavarðveislu og aðgengi að efni.
  • Veitir ráðgjöf varðandi fræðilega útgáfu.

Brot á siðareglum

  • Misferli (t.d. ritstuldur, fölsun gagna, ágreiningur um höfundarétt) verður kannað í samræmi við viðmið COPE.

Veftímaritið Netla stuðlar að fjölbreytileika og kemur í veg fyrir mismunun á öllum stigum útgáfunnar.

Siðareglur útgáfunnar verða endurskoðaðar árlega.