Loginn og kertið

Authors

  • Leonardu Da Vinci
  • Kristín Guðrún Jónsdóttir University of Iceland - School of Humanities

DOI:

https://doi.org/10.33112/millimala.16.1.15

Abstract

Leonardo da Vinci (1452–1519) var einkar fjölhæfur maður sem vann á mörgum sviðum. Ekkert virtist honum óviðkomandi. Hann var listmálari, myndhöggvari, stærðfræðingur, verkfræðingur, uppfinningamaður og margt fleira. Eftir da Vinci liggja ógrynni skrifa um málefni á margvíslegum sviðum með teikningum í svonefndum stílabókum. Inn á milli þessara skrifa um líffærafræði, grasafræði, stjörnufræði, kortagerð og annað, og á spássíu stílabókanna, eru stuttar sögur af ýmsu tagi, meðal annars fabúlur (dæmisögur), sögur um dýr í anda dýratala, kjarnyrði og gátur. Sagan sem hér birtist er tekin úr Codex Atlanticus, f. 188 r.

Kristín Guðrún Jónsdóttir þýddi úr ítölsku og spænsku

Author Biography

  • Kristín Guðrún Jónsdóttir, University of Iceland - School of Humanities

    Kristín Guðrún Jónsdóttir (f. 1958) lauk doktorsprófi í bókmenntum og menningarsögu Rómönsku Ameríku frá Arizona State University árið 2004. Hún gegnir nú starfi prófessors í spænskum og rómansk-amerískum bókmenntum við Háskóla Íslands.

Published

2025-03-27