Innleiðing farsældarlaga: Samstarf ríkis og sveitarfélaga um þjónustu fyrir börn og fjölskyldur
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.13177/irpa.a.2025.21.2.5Lykilorð:
farsældarlög, mennta-, félagsþjónustu- og heilbrigðiskerfi, samþætting þjónustu, samvinna ríkis og sveitarfélagaÚtdráttur
Lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Lögin endurspegla áherslu löggjafans á snemmtæka íhlutun í málefnum barna og fjölskyldna með markvissu samstarfi þjónustuveitenda þvert á sérsvið og mismunandi svið stjórnsýslu. Leitað var svara við rannsóknarspurningum um innleiðingu farsældarlaga; (1) hvernig hún hefði gengið (2) hvernig verkaskipting opinberra aðila breyttist og (3) hvaða stoðverkefni og verkferlar urðu í innleiðingarferlinu. Nýtt var eigindleg aðferð, gerð lýsandi greining á fyrirliggjandi stefnumótunar- og innleiðingargögnum og tekin fjögur viðtöl við sérfræðinga sem komu að innleiðingu til dýpkunar á upplýsingum sem fram komu í gagnagreiningu. Niðurstöður sýndu að á fyrstu fjórum árum innleiðingar hefði mikilvægur grunnur verið lagður að heildrænni samvinnu lykilaðila í lífi barna og fjölskyldna. Stjórnsýslubreytingar og breytt verkaskipting hafa aukið möguleika á samþættri þjónustu með snemmtæk inngrip og farsæld barna í forgrunni. Frumkvöðlasveitarfélög upplifðu jákvæðar breytingar með innleiðingunni og að aukið samtal og markvissari samvinna hefði gefið tækifæri til að grípa börn fyrr og veita þeim þjónustu. Áfram þyrfti að vinna að sameiginlegum skilningi á túlkun laganna, skýra hlutverk hvers þjónustuaðila og styðja við samvinnu þeirra. Á innleiðingartímanum varð til mikilvæg fræðsla, verkferlar voru þróaðir, úrræði útfærð og mikilvæg stoðverkefni urðu til sem meðal annars buðu upp á aukinn stuðning til barna í skólaumhverfinu, foreldrafræðslu og innleiðingu á tengsla- og áfallamiðaðri nálgun í inngildandi skóla- og frístundastarfi.
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2025 Ragný Þóra Guðjohnsen, Eva Harðardóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.