Hagsmunir í húfi: Um samspil stafvæðingar, skýjanotkunar og öryggisflokkunar gagna íslenska ríkisins
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.13177/irpa.a.2025.21.2.3Lykilorð:
stafvæðing, skýjalausnir, öryggisflokkun gagna íslenska ríkisins, upplýsingastjórnun, upplýsingaöryggi, opinber stjórnsýslaÚtdráttur
Ísland er á meðal fremstu þjóða þegar kemur að stafrænni þjónustu. Liðir í þeirri vegferð eru heildarsamningur við Microsoft um hugbúnaðar- og rekstrarlausnir, stefna um notkun skýjalausna og öryggisflokkun gagna íslenska ríkisins. Samhliða slíkri vegferð skulu opinberar stofnanir hlíta lögum um opinber skjalasöfn ásamt reglum Þjóðskjalasafns Íslands. Í greininni er ofangreint samspil skoðað en lítið er um íslenskar rannsóknir sem snúa að öryggi upplýsinga við slíkar umbreytingar. Markmið rannsóknarinnar er að skoða upplifun og reynslu sérfræðinga í upplýsingastjórnun af ofanverðum þáttum á tímum aukinnar notkunar skýjalausna vegna stafvæðingar gagna, samhliða innleiðingu á öryggisflokkun gagna íslenska ríkisins. Spurningakönnun var send til fagfélags á sviði upplýsingastjórnunar þar sem athyglinni var beint að öryggi gagna. Þá voru viðtöl tekin við ólíka sérfræðinga til þess að greina reynslu þeirra af notkun skýjalausna við vistun gagna og innleiðingu og áhrifum öryggisflokkunar íslenska ríkisins. Niðurstöður benda til þess að innleiðing skýjalausna hafi tekið stökkbreytingum hjá hinu opinbera en uppfærslur á upplýsinga- og skjalakerfum verið takmarkaðar. Viðhorf til skýjalausna sé jákvætt og almenn ánægja sé með innleiðingu Microsoft þrátt fyrir að meðferð skjala hafi í einhverjum tilvikum verið ábótavant. Lítill hluti opinberra aðila höfðu gert ráðstafanir til að veita leiðsögn, setja reglur eða tryggja öryggi gagna vegna vistunar í skýjalausnum. Rannsóknin varpar ljósi á helstu álitaefni og mögulega annmarka tengda tæknilegri ofurtrú. Þá benda niðurstöður til óvissu varðandi langtímavistun skjala í skýjalausnum utan kerfisbundinnar upplýsingastjórnunar. Áhrifin gætu falið í sér brotakennda varðveislu stafrænna gagna ásamt rofi milli stafrænnar framþróunar í upplýsingastjórnun og lagalegs ramma.
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2025 Ragna Kemp Haraldsdóttir, Kolbrún Ósk Jónsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.