Kynjakvótalögin fimmtán ára: Hefur markmiðinu um aukna hlutdeild kvenna verið náð?

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2025.21.2.2

Lykilorð:

kynjakvótar, jafnréttisstefna, opinber stefnumótun, innleiðing og eftirfylgni í stjórnsýslu, stjórnarhættir, almenningsálit

Útdráttur

Greinin metur áhrif kynjakvótalaga nr. 13/2010 á jafnrétti í íslensku viðskiptalífi, fimmtán árum eftir gildistöku þeirra. Sérstaklega er skoðað hvernig kvótinn hefur haft áhrif á kynjahlutföll í stjórnum félaga og hvort breytingarnar hafi náð til efsta stjórnendalags, þ.e. framkvæmdastjóra og forstjóra. Markmiðið er að skýra hvers vegna framvinda er hröð í stjórnum en hæg í framkvæmdastjórnum, og hvaða stjórntæki geti brúað þetta bil. Byggt er á blönduðu rannsóknarsniði sem sameinar (i) samfelld fyrirtækjagögn Creditinfo 2007–2025, (ii) GemmaQ-gögn um öll skráð félög 2008–2025, (iii) 44 hálfopin viðtöl við stjórnarfólk allra skráðra félaga á aðalmarkaði Nasdaq Iceland og (iv) Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar 2024 um afstöðu almennings. Niðurstöðurnar sýna að í félögum sem falla undir lögin hefur hlutfall kvenna í stjórnum hækkað markvisst að viðmiðinu um 40%, en á sama tíma eru konur aðeins 18,6% framkvæmdastjóra í fyrirtækjaheildinni og 14,3% forstjóra í skráðum félögum árið 2025. Viðtöl og almenningskönnun benda til klofinna viðhorfa til frekari kvótasetningar, en meirihluti telur framvinduna í efsta stjórnendalagi of hæga. Fræðilegt framlag greinarinnar er að setja niðurstöður um þróun kynjahlutfalla í stjórnum og framkvæmdastjórnum í samhengi stofnanahyggju og femínískrar stofnanahyggju, og ræða hvernig formleg lagasetning getur tryggt sýnilegar breytingar í stjórnum, á meðan óformlegar ráðningarvenjur og tengslanet kunna að takmarka smitáhrif til framkvæmdastjórna. Hagnýtt framlag felst í tillögum um að tengja kvóta í stjórnum við gagnsæ og stöðluð ráðningarferli og mælanlega ábyrgð. Auk þess er mikilvægt að íhuga stigvaxandi kvóta eða „fylgið eða skýrið“ fyrir framkvæmdastjórnir. Niðurstöðurnar varpa þannig ljósi á hver næstu skref geta verið í jafnréttisstefnu viðskiptalífs.

Niðurhal

Útgefið

16.12.2025

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Svipaðar greinar

1-10 af 211

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)