Að undrast heiminn

Heimspeki og börn

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2024.33.5

Lykilorð:

heimspeki, barnaheimspeki, skapandi hugsun, gagnrýnin hugsun, aðalnámskrá leikskóla

Útdráttur

Í greininni er fjallað um hugmyndir barnaheimspekinnar, hugtökin heimspeki fyrir börn og heimspeki með börnum eru afmörkuð í samræmi við helstu kennismiði. Í framhaldi er fjallað um það hvort barnaheimspeki geti yfir höfuð talist heimspeki. Farið er yfir helstu mótbárur og svör og komist að þeirri niðurstöðu að barnaheimspeki sé heimspeki. Færð eru rök fyrir því af hverju skynsamlegt getur talist að stunda barnaheimspeki í íslenskum leikskólum og fjallað um þann ávinning sem iðjan getur haft í för með sér og rannsóknir hafðar til hliðsjónar. Iðkun barnaheimspeki í íslenskum leikskólum samræmist vel aðalnámskrá leikskóla. Áhersla er lögð á eflingu gagnrýninnar og skapandi hugsunar í menntun ungra barna þar sem virðing er borin fyrir þroska þeirra, reynslu og upplifun.

Um höfund (biographies)

  • Ingi Jóhann Friðjónsson

    Ingi Jóhann Friðjónsson (ingij@akmennt.is) er aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Lundarseli-Pálmholti á Akureyri. Hann hefur lagt stund á heimspeki með börnum frá árinu 2017. Ingi útskrifaðist með BA-próf í heimspeki frá Háskóla Íslands 2017 og með M.Ed.- gráðu í menntunarfræðum 2020 frá Háskólanum á Akureyri. Meistararitgerð Inga fjallar um hvort skynsamlegt er að leggja stund á barnaheimspeki í íslenskum leikskólum og er þessi grein byggð á þeirri rannsókn.

  • Guðmundur Heiðar Frímannsson, Háskólinn á Akureyri - Hug- og félagsvísindasvið

    Guðmundur Heiðar Frímannsson (ghf@unak.is) lauk doktorsprófi í heimspeki frá Háskólanum í St. Andrews í Skotlandi árið 1991. Hann starfaði við Háskólann á Akureyri frá 1992 og lauk störfum 2022. Hann stýrði kennaradeild skólans frá 1993 til 2006 og kenndi siðfræði og menntaheimspeki. Guðmundur hefur skrifað mest um menntaheimspeki og siðfræði og gefið út bókina Skólar og lýðræði: Um borgaramenntun.

Niðurhal

Útgefið

2024-10-30