Lýðræðisleg forysta í leikskólum

Höfundar

##plugins.pubIds.doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2023.8

Lykilorð:

lýðræði, heilveldi, stigveldi, leikskóli, félagslegt réttlæti

Útdráttur

Markmið rannsóknarinnar, sem fjallað er um í þessari grein, er að varpa ljósi á lýðræðislega forystu í leikskólum í þeim tilgangi að greina hvað hvetur og hindrar leikskólastjóra í að beita lýðræðislegum stjórnunarháttum. Rannsóknir sýna að lýðræðisleg forysta hvetur til samvinnu. Slík forysta hvetur þá sem að starfinu koma til að vera virkir þátttakendur í skólastarfinu. Hana má skilgreina sem heilveldi (e. holarchy) – sem mótvægi við stigveldi (e. hierarchy). Það felur í sér skuldbindingu starfsfólks og barna gagnvart sameiginlegum gildum lýðræðis og félagslegs réttlætis. Einn þáttur lýðræðislegrar forystu í skólum er að virkja fólk í umræðu en þannig er komið á lýðræðislegum skólabrag og lærdómssamfélagi í leikskólanum, hvatt til frjálsra skoðanaskipta og umræðu og leitað eftir sjónarmiðum og viðhorfum kennara, foreldra og barna. Hálfopin einstaklingsviðtöl voru tekin við átta leikskólastjóra víðs vegar um landið en þau henta vel til að kanna reynslu, skynjun og fyrirætlanir fólks. Tveir rannsakendur skiptu á milli sín viðtölunum og tóku þeir fjögur viðtöl hvor. Niðurstöður leiða í ljós að öllum viðmælendum fannst mikilvægt að beita lýðræðislegri og þátttökumiðaðri forystu í leikskólunum. Auðveldara er að virkja fólk, starfið verður skemmtilegra og starfsánægjan meiri, var meðal þess sem viðmælendur töldu helstu kosti við að beita lýðræðislegri forystu. Eigin þankagangur, getuleysi, áhugaog ábyrgðarleysi var nefnt sem helstu hindranir þess að beita lýðræðislegri forystu; einnig tregða við að gefa frá sér vald og auka frelsi. Fræðilegt gildi rannsóknarinnar felst í aukinni þekkingu á lýðræðislegri forystu og tengslum hennar meðal annars við aukna þátttöku starfsfólks, foreldra og barna í leikskólastarfi og félagslegt réttlæti.

Um höfund (biographies)

Anna Magnes Hreinsdóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

Anna Magnea Hreinsdóttir Ph.D. (amh@hi.is) lauk námi í tómstundafræðum frá Göteborgs folkhögskola í Svíþjóð árið 1980, B.Ed.-gráðu í leikskólafræðum frá Kennaraháskóla Íslands árið 1999 og meistaraprófi frá sama skóla árið 2003. Árið 2009 lauk hún doktorsprófi í menntunarfræðum frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands með áherslu á lýðræðislegt umræðumat á skólastarfi. Hún vann sem leikskólastjóri og leikskólafulltrúi á árunum 1991–2015 og var sviðsstjóri fjölskyldusviðs Borgarbyggðar á árunum 2015–2020. Nú starfar hún við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Arna Hólmfríður Jónsdóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

Arna H. Jónsdóttir Ed.D. (arnahj@hi.is) er leikskólakennari og fyrrverandi dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar hafa einkum beinst að forystu og menntastjórnun en einnig að hlutverki leikskólastjóra og leikskólakennara, einkum deildarstjóra, og sjálfsmynd (e. identity) þeirra.

Niðurhal

Útgefið

2023-04-24

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar