Í upphafi skyldi endinn skoða: Stefna stjórnvalda og þróun á sviði nýsköpunar á Íslandi 2003–2022

Höfundar

  • Hannes Ottósson
  • Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2024.20.1.6

Lykilorð:

Nýsköpun; nýsköpunarstefna stjórnvalda.

Útdráttur

Samhliða aukinni meðvitund um mikilvægi nýsköpunar hafa stjórnvöld víða um heim í auknum mæli haft áhuga að efla nýsköpun og sett sér sérstaka stefnu af því tilefni. Tilgangur þessarar rannsóknar er að auka skilning á því hvernig stefna stjórnvalda hefur áhrif á þróun nýsköpunar og þar með að aðstoða stjórnvöld við að læra af fyrri reynslu og sníða stefnu sína að aðstæðum. Fræðilegar undirstöður rannsóknarinnar byggja á kenningum um nýsköpun og nýsköpunarstefnu stjórnvalda. Í rannsókninni er nýsköpunarstefna stjórnvalda og þróun nýsköpunar á Íslandi greind á 20 ára tímabili, frá árinu 2003 til ársins 2022. Beitt er textagreiningu, lýsandi tölfræði og myndrænni framsetningu til að meta stefnu stjórnvalda, þróun nýsköpunar, og samræmi milli stefnu og þróunar. Niðurstöður rannsóknarinnar eru að stjórnvöld stefndu að því að skapa þekkingarþjóðfélag þar sem kerfisbundið væri unnið að því að styðja rannsóknir og þróun og þannig byggja nýja stoð undir íslenskt atvinnulíf. Umfang og árangur nýskapandi atvinnugreina, hafði aukist talsvert á tímabilinu, þó að sú aukning hafi ekki verið umfram atvinnulífið í heild. Samræmi reyndist vera á milli stefnu stjórnvalda og þróunar nýsköpunar á tímabilinu þó svo niðurstöðurnar vekja upp spurningar hvort að ný og styrk stoð hafi myndast. Frekari rannsóknir á samspili nýsköpunarstefnu og þróun nýsköpunar á Íslandi eru áhugaverðar til að byggja upp almenna þekkingu á þessu sviði og til að auka skilning á þeim aðstæðum sem eru til staðar á Íslandi og læra hvernig einstakar aðgerðir íslenskra stjórnvalda hafa áhrif á umfang og árangur nýsköpunar. 

Um höfund (biographies)

  • Hannes Ottósson

    Lektor við Háskóla Íslands.

  • Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson

    Prófessor við Háskóla Íslands.

Niðurhal

Útgefið

20.06.2024

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Svipaðar greinar

1-10 af 219

Þú gætir nýtt þér Hefja ítarlega líkindaleit fyrir þessa grein.